Difference between revisions 1490533 and 1493819 on iswiki{{land | nafn_á_frummáli = Jumhuriyat Tashad
République du Tchad | nafn_í_eignarfalli = Tsjad | fáni = Flag of Chad.svg | skjaldarmerki = Coat of arms of Chad.svg | kjörorð = Unité - Travail - Progrès
([[franska]]: Eining - vinna - framfarir) | staðsetningarkort = Location_Chad_AU_Africa.svg | tungumál = [[franska]], [[arabíska]] | höfuðborg = [[N'Djamena]] | stjórnarfar = [[Lýðveldi]] | titill_leiðtoga = [[Forseti Tsjad|Forseti]]
[[Forsætisráðherra Tsjad|Forsætisráðherra]] | nöfn_leiðtoga = [[Idriss Déby]]
[[Kalzeubet Pahimi Deubet]] | stærðarsæti = 21 | flatarmál = 1.284.000 | hlutfall_vatns = 1,9 | mannfjöldaár = 2012 | mannfjöldasæti = 73 | fólksfjöldi = 10.975.648 | íbúar_á_ferkílómetra = 9 | VLF_ár = 2011 | VLF_sæti = 122 | VLF = 19,543 | VLF_á_mann = 1.865 | VLF_á_mann_sæti = 146 | staða = [[Sjálfstæði]] | atburður1 = frá [[Frakkland]]i | dagsetning1 = [[11. ágúst]] [[1960]] | gjaldmiðill = [[CFA-franki]] (XAF) | tímabelti = [[UTC]] +1 | þjóðsöngur = [[La Tchadienne]] | tld = td | símakóði = 235 }} '''Tsjad''' ([[arabíska]] تشاد , ''Tašād''; [[franska]] ''Tchad'') er [[landlukt]] land í [[Mið-Afríka|Mið-Afríku]]. Það á landamæri að [[Líbýa|Líbýu]] í norðri, [[Súdan]] í austri, [[Mið-Afríkulýðveldið|Mið-Afríkulýðveldinu]] í suðri, [[Kamerún]] og [[Nígería|Nígeríu]] í suðvestri og [[Níger]] í vestri. Landið er að stærstum hluta í [[Sahara]]eyðimörkinni. Í norðurhluta þess er [[Tíbestífjallgarðurinn]], stærsti fjallgarður Sahara. Hæsti fjallstindur Tsjad er eldfjallið [[Emi Koussi]] í Tíbetsífjallgarðinum sem stendur í 3.445 metra hæð yfir sjávarmáli. Nafn landsins er dregið af nafni [[Tsjadvatn]]s sem er stærsta votlendissvæðið í Tsjad og það annað stærsta í Afríku. Landið skiptist í þrjú belti: Nyrst er [[eyðimörk]] og syðst [[Súdan (heimshluti)|súdönsk]] [[grasslétta]] en milli þeirra er [[sahel]] eða eyðimerkurjaðar. Íbúar Tsjad eru rúmlega tíu milljónir og tilheyra yfir 200 ólíkum þjóðarbrotum. Tæplega milljón býr í höfuðborginni, [[N'Djamena]], sunnan við Tsjadvatn við vesturlandamæri landsins. Um 120 tungumál af þremur málaættum eru töluð í Tsjad en opinber tungumál landsins eru [[franska]] og [[arabíska]]. [[Tsjadísk arabíska]] er almennt samskiptamál. Rétt rúmur helmingur íbúa aðhyllist [[íslam]] og um 40% eru [[Kristni|kristnir]]. == Saga == {{commonscat|Chad|Tsjad}} Menn tóku að setjast að í dældinni við Tsjadvatn á sjöunda árþúsundinu fyrir okkar tímatal. Nokkur ríki komu þar upp í tengslum við [[Saharaverslunin]]a. Á miðöldum varð hluti landsins hluti af [[Kanem-Bornúveldið|Kanem-Bornúveldinu]] en á nýöld náðu ríkin [[Ouaddai]] og [[Banguirmi]] hlutum landsins undir sig. Frakkar hófu herferðir gegn múslimskum soldánsdæmum í Tsjad undir lok 19. aldar og lögðu það undir sig eftir sigur á súdanska stríðsherranum [[Rabih az-Zubayr]] í [[orrustan við Kousséri|orrustunni við Kousséri]] árið 1900. Árið 1905 varð Tsjad hluti af [[Franska Miðbaugs-Afríka|Frönsku Miðbaugs-Afríku]]. Eftir ósigur Frakka gegn Þjóðverjum í [[Síðari heimsstyrjöld]] gekk Tsjad til liðs við [[Bandamenn (seinni heimsstyrjöldin)|Bandamenn]], fyrst franskra nýlendna. Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1958 var Franska Miðbaugs-Afríka leyst upp og ríkin [[Gabon]], [[Vestur-Kongó]], Mið-Afríkulýðveldið og Tsjad urðu sjálfstæðar nýlendur. Tveimur árum síðar varð Tsjad sjálfstætt og [[François Tombalbaye]] varð fyrsti forseti landsins. Tombalbaye kom á flokksræði og fljótlega hófst uppreisn gegn stjórn hans í norðurhluta landsins. Eftir langvinna borgarastyrjöld var Tombalbaye drepinn í herforingjauppreisn árið 1975 og við tók herforingjastjórn. Aftur braust út borgarastyrjöld árið 1979 sem stóð til 1982. Einn af leiðtogum herforingjastjórnarinnar, [[Hissène Habré]], náði þá völdum. Hann barðist gegn uppreisnarflokkum í norðri sem höfðu stuðning [[Líbýa|Líbýustjórnar]] [[Muammar Gaddafi|Muammars Gaddafi]] og barði niður alla mótspyrnu innanlands af mikilli hörku. Árið 1987 sömdu Tsjad og Líbýa um vopnahlé og í kjölfar alþjóðlegrar ráðstefnu 1994 fékk Tsjad aftur yfirráð yfir löndum í norðurhlutanum sem Líbýumenn höfðu hernumið. Einn af herforingjum Habrés, [[Idriss Déby]], hóf uppreisn gegn honum 1989 og náði völdum 1991. Hann sigraði í fyrstu fjölflokkakosningunum sem haldnar voru 1997. Déby náði að kveða niður óróann í landinu að mestu en eftir sigur hans í forsetakosningum 2001 var hann sakaður um kosningasvindl og spillingu. Þegar átökin hófust í [[Darfúr]] í Súdan komu þúsundir flóttamanna þaðan til Tsjad sem lýsti Súdan stríði á hendur árið 2005. Í kjölfarið hófst aftur [[borgarastyrjöldin í Tsjad (2005-2010)|borgarastyrjöld í Tsjad]] sem stóð til 2010 og náði hápunkti með árás andstæðinga Débys á höfuðborgina N'Djamena í apríl 2006 og aftur í febrúar 2008. Stjórn Débys náði að verjast og hélt völdum. Árið 2010 var undirritað friðarsamkomulag við Súdan sem fól í sér að flóttamenn frá Darfúr fengu að snúa aftur heim. == Stjórnsýsluskipting == Frá febrúar 2008 hefur Tsjad skipst í 22 héruð sem tóku við af 14 umdæmum. Innan héraðanna eru 61 lögsagnarumdæmi sem skiptast í 200 undirumdæmi sem aftur ná yfir 446 sveitarfélög. Hver stjórnsýslueining á að hafa eigin þing en kosningar til sveitarstjórna hafa ekki verið haldnar. {| |- valign="top" | | [[Mynd:Chad regions map-numbered 2008-02.svg|250px|left|Héruð Tsjad]] | # [[Batha-hérað|Batha]] # [[Chari-Baguirmi-hérað|Chari-Baguirmi]] # [[Hadjer-Lamis-hérað|Hadjer-Lamis]] # [[Wadi Fira-hérað|Wadi Fira]] # [[Bahr el Gazel-hérað|Bahr el Gazel]] # [[Borkou-hérað|Borkou]] # [[Ennedi-hérað|Ennedi]] # [[Guéra-hérað|Guéra]] # [[Kanem-hérað|Kanem]] # [[Lac-hérað|Lac]] # [[Logone Occidental Region|Logone Occidental]] | #
[[Logone Oriental-hérað|Logone Oriental]]
# [[Mandoul-hérað|Mandoul]] # [[Mayo-Kebbi Est-hérað|Mayo-Kebbi Est]] # [[Mayo-Kebbi Ouest-hérað|Mayo-Kebbi Ouest]] # [[Moyen-Chari-hérað|Moyen-Chari]] # [[Ouaddaï-hérað|Ouaddaï]] # [[Salamat-hérað|Salamat]] # [[Sila-hérað|Sila]] # [[Tandjilé-hérað|Tandjilé]] # [[Tibesti-hérað|Tibesti]] # [[N'Djamena]] |} {{Stubbur|afríka}} {{Afríka}} [[Flokkur:Tsjad| ]] [[Flokkur:Landlukt lönd]]⏎ ⏎ {{Tengill GG|da}} {{Tengill GG|es}} {{Tengill GG|pt}} All content in the above text box is licensed under the Creative Commons Attribution-ShareAlike license Version 4 and was originally sourced from https://is.wikipedia.org/w/index.php?diff=prev&oldid=1493819.
![]() ![]() This site is not affiliated with or endorsed in any way by the Wikimedia Foundation or any of its affiliates. In fact, we fucking despise them.