Difference between revisions 1508863 and 1512033 on iswiki[[Mynd:Scarlet_lily_beetle_lilioceris_lilii.jpg|200px|right|Liljubjalla|alt=Liljubjalla|link=Liljubjalla]] *… að þýska orðið '''''[[Führer]]''''' er svo nátengt nafni Adolfs Hitlers að það er nánast samheiti þess? *… að '''[[Steinunn Jóhannesdóttir]]''' var fyrsta íslenska konan sem lauk læknanámi? *… að í kjölfar '''[[Þingkosningar í Bretlandi 2015|þingkosninganna í Bretlandi]]''' 2015 sögðu leiðtogar þriggja stjórnmálaflokka af sér?⏎ [[Mynd:New_shot_of_Proxima_Centauri,_our_nearest_neighbour.jpg|200px|right|Proxima Centauri|alt=Proxima Centauri|link=Rauður dvergur]] *… að '''[[auðlindabölvun]]in''' er skýring á því af hverju lönd sem eiga miklar náttúruauðlindir búa við minni hagvöxt en önnur? *… að algengasta tegund stjarna í okkar vetrarbraut eru '''[[rauður dvergur|rauðir dvergar]]''' (''sjá mynd'')? *… að '''[[frjósami hálfmáninn]]''' var fyrst skilgreindur af James Henry Breasted árið 1916? *… að Alþjóðasamband stjörnufræðinga viðurkennir formlega '''[[listi yfir stjörnumerki|88 stjörnumerki]]'''? *… að veffyrirtækið '''[[Airbnb]]''' er með höfuðstöðvar í San Francisco í Bandaríkjunum? *… að forseti Úkraínu, '''[[Petró Pórósjenkó]]''', hefur verið uppnefndur „súkkulaðikóngurinn“? *… að '''[[Guy Standing]]''' (''sjá mynd'') er breskur hagfræðingur sem hefur haldið á lofti hugmyndinni um borgaralaun? *… að stofn '''[[Kaliforníusardína|Kaliforníusardínu]]''' hrundi vegna ofveiði árið 1967? *… að orðið '''[[sófi]]''' er komið úr tyrknesku? [[Mynd:Guy_Standing.jpeg|200px|right|Guy Standing|alt=Guy Standing|link=Guy Standing]] *… að enginn lét lífið í fjölmörgum sprengjutilræðum bandarísku hryðjuverkasamtakanna '''[[Weather Underground]]'''? *… að '''[[Uppsalaháskóli]]''' er elsti háskóli á Norðurlöndunum? *… að þegar '''[[fjölvínýlklóríð]]''' (PVC-plastefni) brenna getur myndast díoxín? [[Mynd:Uppsala_Gustavianum.jpg|150px|right|Uppsalaháskóli|alt=Uppsalaháskóli|link=Uppsalaháskóli]] *… að mörk '''[[sólvindshvolfið|sólvindshvolfsins]]''' eru langt fyrir utan sporbaug Plútó? *… að '''''[[1812-forleikurinn]]''''' eftir Tsjaíkovskí fjallar um sigur Rússa á Frökkum í Napóleonsstyrjöldunum? *… að '''[[Ríkisstjórnir Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2009-2013|ríkisstjórnir Samfylkingarinnar og VG]]''' 2009-2013 voru þær fyrstu með jafnt kynjahlutfall? [[Mynd:Features1.jpg|200px|right|Fastefnisdrif|alt=Sólvindshvolfið|link=Sólvindshvolfið]] *… að '''[[Mars Polar Lander]]''' átti að kanna hvort vatn leyndist á pólsvæðum Mars árið 1999? *… að tónlistarkonan Norah Jones er dóttir indverska tónlistarmannsins '''[[Ravi Shankar]]'''? *… að '''[[þrettándi viðauki stjórnarskrár Bandaríkjanna]]''' sem bannar þrælahald er sá fyrsti sem tók gildi eftir bandarísku borgarastyrjöldina? [[Mynd:Vertex_2_Solid_State_Drive_by_OCZ-top_oblique_PNr%C2%B00307.jpg|150px|right|Fastefnisdrif|alt=Fastefnisdrif|link=Fastefnisdrif]] *… að '''[[fastefnisdrif]]''' (''sjá mynd'') eru bæði hljóðlátari, hraðvirkari og endingarbetri en hefðbundnir harðir diskar? *… að orðið '''[[gúrkutíð]]''' er komið frá þýska orðinu ''Sauregurkenzeit''? *… að '''[[Ólafur Jónsson, ráðunautur]]''' var frumkvöðull í rannsóknum á skriðuföllum og snjóflóðum á Íslandi? *… að heiðin milli Bolungarvíkur og Selárdals í Súgandafirði heitir '''[[Grárófa]]'''? *… að í '''[[Tylösand]]''' í Svíþjóð er hótel í eigu Per Gessle úr Roxette? *… að '''[[guðaníundin]]''' voru níu fornegypskir guðir sem einkum voru dýrkaðir í Helíópólis? [[Mynd:PIN-Brief.jpg|150px|right|PIN-bréf frá banka|alt=PIN-bréf frá banka|link=PIN-númer]] *… að skammstöfunin PIN í '''[[PIN-númer]]''' (sjá mynd) stendur fyrir „''personal identification number''“? *… að '''[[smjörlíki]]''' var fundið upp árið 1869 að áeggjan Napóleons 3.? *… að '''[[Ásgeirsverslun]]''' á Ísafirði var um tíma stærsta verslunarfyrirtæki Íslands? [[Mynd:Nes við Seltjörn.jpg|150px|right|Asa Wright Nature Centre|alt=Nes við Seltjörn|link=Nes við Seltjörn]] *… að '''[[sjávarfit]]''' er gróið svæði við strönd ofan háflóðslínu sem stundum flæðir yfir? *… að fyrsti '''[[teikningastækkari]]nn''' var fundinn upp árið 1603? *… að íslenska orðið '''[[kex]]''' er komið af enska orðinu ''cakes'' í gegnum danska orðið ''kiks''? *… að '''[[Sómalíustraumurinn]]''' í Indlandshafi breytir um stefnu eftir árstíma? *… að vettvangsnámskeið fyrir fornleifafræðinema hafa verið haldin á '''[[Nes við Seltjörn|Nesi við Seltjörn]]''' (''sjá mynd'') frá 2007? *… að elstu dæmin um '''[[spjaldvefnaður|spjaldvefnað]]''' eru frá því um 400 fyrir Krist? *… að '''[[kumlateigurinn á Ingiríðarstöðum]]''' inniheldur 14 grafir, þar af fimm hestagrafir? *… að í '''[[Höfðaborgin]]ni''' voru 104 30m² bráðabirgðaíbúðir? *… að '''[[stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna]]''' kveður á um að skyldur gagnvart Sameinuðu þjóðunum séu yfirsterkari skyldum gagnvart öðrum alþjóðasáttmálum? [[Mynd:089_Northern_Range,_Asa_Wright_Nature_Centre_-_28.11.07.jpg|150px|right|Asa Wright Nature Centre|alt=Asa Wright Nature Centre|link=Ása Guðmundsdóttir Wright]] *… að leyfi til veiða á tilteknum fjölda '''[[svartur nashyrningur|svartra nashyrninga]]''' eru boðin upp til að standa straum af kostnaði við verndun þeirra? *… að Asa Wright Nature Centre á Trinídad (''sjá mynd'') er kennt við '''[[Ása Guðmundsdóttir Wright|Ásu Guðmundsdóttur Wright]]'''? *… að '''[[Félagseyjar]]''' í Frönsku Pólýnesíu skiptast í Hléborðseyjar og Kulborðseyjar? [[Mynd:Policemen_in_gas_masks_guard_Austurvöllur_after_dispersing_the_crowd_with_tear_gas..jpg|150px|right|Óeirðirnar á Austurvelli 1949|alt=Óeirðirnar á Austurvelli 1949|link=Óeirðirnar á Austurvelli 1949]] *… að í tilefni af tíu ára afmæli '''[[Íslenska Wikipedia|íslensku Wikipediu]]''', 5. desember 2013, voru 30 áður óbirtar ljósmyndir teknar í kringum [[óeirðirnar á Austurvelli 1949]] (''sjá mynd'') settar á [[Wikimedia Commons]]? *… að '''[[Æfingar tunglfara í Þingeyjarsýslum|æfingum tunglfara í Þingeyjarsýslum]]''' eru gerð skil í Könnunarsögusafninu á Húsavík? *… að mannslíkaminn framleiðir um það bil einn lítra af '''[[slím]]i''' á dag? [[Mynd:Geology_training_in_Iceland_1967.jpg|150px|right|Tunglfarar|alt=Tunglfarar|link=Æfingar tunglfara í Þingeyjarsýslum]] *… að '''[[Imhotep]]''', ráðgjafi faraósins Djosers, er talinn fyrsti læknir, verkfræðingur og arkitekt sögunnar? *… að tölvuleikurinn '''''[[Doom]]''''' frá 1993 varð til þess að auka vinsældir fyrstu persónu skotleikja? *… að '''[[Klaufi Hafþórsson]]''' er ein af aðalpersónum ''Svarfdæla sögu''? *… að Guðjón Samúelsson teiknaði '''[[Sundhöllin á Ísafirði|Sundhöllina á Ísafirði]]''' sem var opnuð árið 1946? [[Mynd:NASA-Apollo8-Dec24-Earthrise.jpg|110px|right|Jarðarupprás|alt=Jarðarupprás|link=Jarðarupprás]] *… að í kringum 1955 fór '''[[Barbara Árnason]]''' að vinna með útsaumsverk úr lopa? *… að '''[[perluostrur]]''' þykja ekki góðar til matar? *… að á '''[[fjallasveifgras]]i''' vaxa nýjar plöntur upp af puntinum áður en þær detta af og mynda sjálfar rót? *… að innihald '''[[Waitangi-samningurinn|Waitangi-samningsins]]''' er umdeilt vegna merkingarmunar á maorísku og ensku útgáfu hans? *… að '''[[bylgjupappi]]''' var upphaflega líning fyrir háa hatta? *… að ljósmyndinni '''[[Jarðarupprás]]''' eftir Bill Anders (''sjá mynd'') hefur verið lýst sem þeirri áhrifamestu sem tekin hefur verið af jörðinni? *… að ein bók eftir sænska stjórnmálamanninn '''[[Andres Küng]]''' hefur komið út á íslensku í þýðingu Davíðs Oddssonar? *… að í „náttúrulega litakerfinu“ '''[[NCS]]''' eru þrjú pör frumlita og því alls sex frumlitir? *… að dúkurinn sem lagður er yfir '''[[obláta|oblátuna]]''' í altarisgöngu nefnist korpóralsdúkur? *… að málhreinsunarnefnd '''[[Lestrarfélag kvenna|Lestrarfélags kvenna]]''' átti upptökin að nýyrðum á borð við „veggfóður“ og „snyrting“? *… að franska kvikmyndin '''''[[Eyjafjallajökull (kvikmynd)|Eyjafjallajökull]]''''' fjallar um fólk sem nær ekki flugi í brúðkaup dóttur sinnar vegna eldgossins? *… að til eru þrjár núlifandi tegundir '''[[fíll|fíla]]''', þar af tvær í Afríku sem áður voru álitnar sama tegundin? [[Mynd:Drottningholm_kollage_2011abc.jpg|110px|right|Drottningarhólmahöll|alt=Drottningarhólmahöll|link=Drottningarhólmahöll]] *… að '''[[Mercator-vörpun]]''' varð vinsæl í siglingafræði vegna þess að hægt er að reikna beinar stefnulínur í allar áttir? *… að hlutfallslega mesta fræolíu er að finna í '''[[sesamjurt|sesamfræjum]]'''? *… að heiti lækurinn úr Laugardalnum í Reykjavík rann til sjávar við '''[[Kirkjusandur|Kirkjusand]]'''? *… að opinber bústaður Karls Gústafs konungs Svíþjóðar og Silvíu drottningar er '''[[Drottningarhólmahöll]]''' (''sjá mynd'') á Leginum? *… að þótt niðursuðudósir hafi verið notaðar frá 1772 var '''[[dósaupptakari|dósahnífurinn]]''' ekki fundinn upp fyrr en 1855? *… að jurtaefnið '''[[imperatorin]]''', sem hefur verið einangrað úr hvannarfræjum, er talið hindra fjölgun krabbameinsfruma? [[Mynd:Jupiter and the Galilean Satellites.jpg|110px|right|Galíleótunglin|alt=Galíleótunglin|link=]] *… að uppgötvun '''[[Galíleótunglin|Galíleótunglanna]]''' 1610 (''sjá mynd'') þótti vera óhrekjanleg sönnun þess að í geimnum væru tungl á braut um annað en jörðu? *… að áður en '''''[[Stjórnartíðindi]]''''' hófu göngu sína 1877 átti að lesa upp ný lög og reglugerðir í heyranda hljóði? *… að [[Egyptaland|egypski]] [[Veira|veirufræðingurinn]] Dr. Ali Mohamed Zaki var rekinn fyrir að deila [[rannsókn|rannsóknum]]um sínum á nýrri kórónaveiru, '''[[MERS-CoV]]'''? *… að '''[[hvarmabólga]]''' er algengari hjá ljóshærðu fólki og rauðhærðu? *… að á Bessastöðum var fálkahús fyrir '''[[fálkaveiðar|fálka sem voru veiddir]]''' handa Danakonungi á Íslandi? *… að krónueignir erlendra aðila á Íslandi, '''[[snjóhengjan]]''' svokallaða, eru taldar nema 800 til 1000 milljörðum króna? [[Mynd:Mont_Blanc_du_Tacul_northeast,_2010_July_2.JPG|160px|right|Snjóhengjan|alt=Snjóhengjan|link=]] *… að þegar ný tækni gerir störf úrelt getur orðið til svokallað '''[[framfaraatvinnuleysi]]'''? *… að '''[[Hjalti Skeggjason]]''' er sagður hafa siglt til Noregs á skipi sem hann smíðaði í Þjórsárdal? *… að '''[[1. Mósebók]]''' nefnist á hebresku בְּרֵאשִׁית ''Bərēšīṯ'' sem merkir „í upphafi“? [[Mynd:Genesis_on_egg_cropped.jpg|120px|right|Fyrsta Mósebók rituð á egg|alt=Fyrsta Mósebók á eggi|link=]] *… að með '''[[PlayStation 4]]'''-leikjatölvunni verður hægt að deila leikjum á Internetinu og spila streymda leiki? *… að bandaríski fjárfestirinn '''[[Paul Allen]]''' stóð á bak við fyrsta mannaða geimflug einkaaðila árið 2004? *… að '''[[sölpur]]''' mynda samfélög með því að tengjast saman í keðju? *… að '''[[áhættubréf]]''' urðu fyrst verulega vinsæl á Wall Street á 9. áratug 20. aldar? *… að fyrsta hljómplata '''[[Pólýfónkórinn|Pólýfónkórsins]]''' kom út 1973 á vegum RCA? *… að '''[[sauðasalan til Bretlands]]''' var bönnuð með breskum lögum árið 1897? [[Mynd:Xiah_Junsu_concert_crop.jpg|100px|right|Xiah Junsu á tónleikum|alt=Xiah Junsu á tónleikum|link=]] *… að eitt af einkennum '''[[Kóreupopp]]s''' (''sjá mynd'') eru samhæfðir dansar? *… að friðartímabilið í kjölfar Napóleonsstyrjaldanna var kallað '''[[Pax Britannica]]'''? *… að '''[[blautjörð]]''' er jarðvegsgerð í votlendi þar sem áfok er mikið? *… að þýski heimspekingurinn '''[[Walter Benjamin]]''' framdi sjálfsmorð á flótta undan nasistum? *… að helsti talsmaður '''[[Þjóðvarnarfélagið|Þjóðvarnarfélagsins]]''' var Sigurbjörn Einarsson, síðar biskup? *… að '''[[íslenska Wikipedia]]''' var stofnuð 5. desember 2003? [[Mynd:Walter_Benjamin_vers_1928.jpg|100px|right|Walter Benjamin|alt=Walter Benjamin|link=]] *… að heimavöllur Coventry City '''[[Ricoh Arena]]''' átti upphaflega að heita „Jaguar Arena“? *… að stærsti laxfiskurinn er '''[[kóngalax]]''' sem lifir við strendur Norður-Kyrrahafs? *… að '''[[heilahristingur]]''' flokkast sem höfuðáverki með tímabundið tap heilastarfsemi? [[Mynd:Ricoh_arena_30s07.JPG|170px|right|Ricoh Arena|alt=Ricoh Arena|link=]] *… að danski stjórnmálaflokkurinn '''[[Venstre]]''' er hægriflokkur sem kennir sig við frjálslyndisstefnu? *… að '''[[ástrónesísk tungumál]]''' hafa verið töluð frá Madagaskar í vestri að Páskaeyju í austri? *… að '''[[Demantshringurinn]]''' er ferðaleið á Norðurlandi sem farið var að markaðssetja um 1990? [[Mynd:Bjorn_Borg_(1979).jpg|200px|right|Björn Borg|alt=Björn Borg|link=]] *… að sænski tennisleikarinn '''[[Björn Borg]]''' (''sjá mynd'') dró sig í hlé frá íþróttinni aðeins 26 ára gamall? *… að til er saga um að '''[[hjálmlaukur]]''' hafi verið fluttur til Evrópu af Rómafólki? *… að '''[[Rio Grande do Sul]]''' er syðsta fylki Brasilíu? *… að '''[[stilkormar]]''' eru fylking dýra sem ekki geta hreyft sig úr stað og lifa af því að sía fæðuagnir úr vatninu? *… að bragðefnið '''[[vanilla]]''' er unnið úr aðallega mexíkóskum tegundum orkídea? *… að ein stærsta tónlistarhátíð Belgíu, Pukkelpop, er haldin árlega í borginni '''[[Hasselt]]'''? [[Mynd:Western-Ghats-Matheran.jpg|150px|right|Deccan-flæðibasaltið|alt=Deccan-flæðibasaltið|link=]] *… að 7500 ára gamlar menjar um '''[[kjúklingabaun]]aræktun''' hafa fundist í Miðausturlöndum? *… að ríkisstjórn Bretlands viðurkenndi ekki tilvist '''[[Breska leyniþjónustan|bresku leyniþjónustunnar]]''', MI6, fyrr en árið 1994? *… að ''' [[Deccan-flæðibasaltið]]''' á Indlandi (''sjá mynd'') myndaðist í lok Krítartímabilsins fyrir 60-68 milljónum ára? *… að hlutverk '''[[Vínarfundurinn|Vínarfundarins]]''' 1815 var að draga upp nýtt landakort af Evrópu eftir fall Napóleons? *… að '''[[samræmingarverkefni Posts]]''' er oft tekið sem dæmi um óleysanlegt ákvörðunarvandamál? *… að '''[[flugslysið í Héðinsfirði]]''' árið 1947 er mannskæðasta flugslys sem orðið hefur á Íslandi? [[Mynd:CongressVienna.jpg|150px|right|Vínarfundurinn|alt=Vínarfundurinn|link=]] *… að bókin '''''[[No Logo]]''''' sem kom út 1999 lýsir áhrifum vörumerkja á líf og líðan fólks? *… að '''[[hvalsauki]]''', vaxkennd olía sem finnst í höfði búrhvala, storknar við 29 gráðu hita? *… að Tage Ammendrup ritaði greinar í '''''[[Tímaritið Jazz]]''''' til að bregðast við neikvæðri umfjöllun um djasstónlist á Íslandi? *… að '''[[Emil Thoroddsen]]''' lést aðeins nokkrum dögum eftir að lag hans „[[Hver á sér fegra föðurland]]“ var frumflutt á [[Lýðveldishátíðin 1944|Lýðveldishátíðinni 1944]]? *… að [[Ungmennafélagið Víkingur]] frá [[Ólafsvík]] mun leika í fyrsta sinn í '''[[Pepsideild karla í knattspyrnu 2013|Pepsideildinni]]''' á næsta ári? *… að aðalefnið í '''[[lyftiduft]]i''' er [[matarsódi]]? *… að '''[[öldusótt]]''' er bakteríusjúkdómur sem smitast í fólk úr ógerilsneyddum matvörum? *… að [[Jakob Hafstein]] þýddi sænska lagið „Söngur villiandarinnar“ og söng inn á '''[[Jakob Hafstein - Söngur villiandarinnar|samnefnda plötu]]''' árið 1954? *… að '''[[Mini]]''' (''sjá mynd'') var árið 1999 kosinn annar áhrifamesti [[bíll]] allra tíma á eftir [[Ford T]]? [[Mynd:Morris_Mini-Minor_1959.jpg|150px|right|Mini|alt=Mini|link=]] *… að í '''[[geimklósett]]i''' er loftstraumur notaður til að beina úrganginum í rétta átt? *… að fyrsta konan sem þreytti [[Viðey]]jarsund var '''[[Ásta Laufey Jóhannesdóttir]]''' árið 1928? *… að lögin fyrir plötuna '''''[[Led Zeppelin III]]''''' voru flest samin á bóndabæ í [[Wales]]? [[Mynd:Shard_London_Bridge_May_2012.JPG|100px|right|The Shard|alt=The Shard|link=]] *… að skýjakljúfurinn '''[[The Shard]]''' í [[London]] (''sjá mynd'') er hæsta bygging í Evrópu? *… að nafn aðalsöguhetjunnar Jimmy Plant í myndasögunum '''[[421 (teiknimyndasögur)|421]]''' er gert úr nöfnum [[Jimmy Page]] og [[Robert Plant]] úr hljómsveitinni [[Led Zeppelin]]? *… að samkvæmt íslenskri þjóðtrú átti að tína '''[[brönugras|brönugrös]]''' á [[Jónsmessa|Jónsmessunótt]] nálægt fjörum? *… að bandaríski leikstjórinn '''[[John Waters]]''' setti upp [[brúðuleikhús]] í afmælum sem barn? *… að '''[[Microsoft Dynamics AX]]''' byggir á IBM Axapta? *… að tvíburarnir '''[[Jedward]]''' hafa gefið út tvær hljómplötur sem báðar urðu metsöluplötur á [[Írland]]i? [[Mynd:Eriocrania_unimaculella.jpg|100px|right|Birkikemba|alt=Birkikemba|link=]] *… að '''[[birkikemba|birkikembu]]''' (''sjá mynd'') varð fyrst vart í [[Hveragerði]] árið [[2005]]? *… að breski dýrafræðingurinn '''[[Jane Goodall]]''' er sérstakur sendiherra friðar hjá [[Sameinuðu þjóðirnar|Sameinuðu þjóðunum]]? *… að '''[[búlgarskt lef]]''' er tengt við [[evra|evruna]] á genginu 1,95583? *… að '''[[Menningar- og vísindahöllin í Varsjá]]''' hét áður ''Menningar- og vísindahöll Jósefs Stalíns''? *… að frumraun '''[[Wachowski-bræður|Wachowski-bræðra]]''' í kvikmyndagerð var handritið að kvikmyndinni ''[[Assassins]]'' með [[Sylvester Stallone]]? *… að skólablað nemendafélagsins [[Framtíðin|Framtíðarinnar]] í [[Menntaskólinn í Reykjavík|MR]]. '''''[[Skinfaxi]]''''', hefur komið út frá 1898? *… að '''[[döbb]]''' þróaðist meðal plötusnúða á [[Jamaíka]] sem hljóðblönduðu [[reggí]]lög á ákveðinn hátt? *… að pastategundin '''[[linguine]]''' sem kemur frá [[Genúa]] er oftast höfð með [[pestó]]i eða [[sjávarfang]]i? *… að '''[[London Stansted-flugvöllur]]''' (''sjá mynd'') var fjórði fjölsóttasti flugvöllur [[Bretland]]s árið 2011? [[Mynd:Livorno,_Monumento_dei_quattro_mori_a_Ferdinando_II_(1626)_-_Foto_Giovanni_Dall'Orto,_13-4-2006_01.jpg|100px|right|Monumento dei Quattro Mori]] *… að [[Þórður Tómasson]] frá [[Skógar|Skógum]] safnaði munum úr Borgarhól við '''[[Stóra-Borg undir Eyjafjöllum|Stóru-Borg]]''' eftir því sem hóllinn eyddist? *… að í fyrstu '''[[bikarkeppni KKÍ (karlar)|bikarkeppni]]''' [[Körfuknattleikssamband Íslands|Körfuknattleikssambands Íslands]] 1965 sigraði b-lið [[Glímufélagið Ármann|Ármanns]] [[Þór Akureyri]] 46:26? *… að '''[[þangdoppa]]''' er að jafnaði ljósari að lit í sólríkum fjörum en skuggsælum? *… að fyrsta áhrifamikla platan sem kennd er við '''[[djassbræðingur|djassbræðing]]''' er ''[[Bitches Brew]]'' eftir [[Miles Davis]]? *… að '''[[Monumento dei Quattro Mori]]''' („Minnismerki fjögurra mára“) í [[Livorno]] (''sjá mynd'') var reist á 17. öld til minningar um sigra [[Ferdínand 1. de' Medici|Ferdinands 1.]] á [[Sjóræningjar frá Barbaríinu|sjóræningjum frá Barbaríinu]]? [[Mynd:Kyrrahafsansjósa_(Cetengraulis_mysticetus).gif|100px|right|Kyrrahafsansjósa]] *… að '''[[Heyrnleysingjaskólinn]]''' var stofnaður 1909 og nefndist þá „Málleysingjaskólinn“? *… að samkvæmt '''[[útstreymiskenning]]u''' fjarlægjast hlutir stöðugt fullkominn uppruna? *… að í kirkjunni á '''[[Ingjaldssandur|Ingjaldssandi]]''' er skírnarfontur eftir [[Guðmundur frá Miðdal|Guðmund frá Miðdal]]? *… að [[Panama]] var nánast eitt um veiðar á '''[[kyrrahafsansjósa|kyrrahafsansjósu]]''' (''sjá mynd'') til 1970? *… að '''''[[Í klandri hjá kúrekum]]''''' er þriðja bókin um [[Svalur og Valur|Sval og Val]] en sú 20. sem kom út á íslensku? [[Mynd:Lesp1.jpg|100px|right|Sjósvala]] *… að íslenska kvikmyndin '''''[[Eldfjall (kvikmynd)|Eldfjall]]''''' hefur verið sýnd á fjölmörgum kvikmyndahátíðum, þar á meðal í [[Kvikmyndahátíðin í Cannes|Cannes]]? *… að franski leikarinn '''[[Sebastian Roché]]''' talar fjögur tungumál? *… að '''[[flokkunarkerfi Aarne-Thompson]]''' er flokkunarkerfi fyrir þjóðsögur, ævintýri og sagnir? *… að '''[[sjósvala]]''' (sjá mynd) er sjófugl sem tilheyrir ættbálki [[Pípunefir|pípunefja]]? *… að bandaríska tölvuleikjafyrirtækið '''[[Infocom]]''' var stofnað af nokkrum starfsmönnum og nemendum við [[MIT]]? *… að '''[[efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis]]''' fjallar um mál er varða viðskipti, skatta og tolla? [[Mynd:Seagull in flight by Jiyang Chen.jpg|90px|right|Hringmáfur á flugi]] *… að '''[[Chris O'Donnell]]''' kom fyrst fram 1986 í sjónvarpsþættinum Jack and Mike? *… að '''[[Drenthe]]''' er hollenskt fylki sem nær austast í landinu og liggur að þýsku landamærunum? *… að '''[[máfar]]''' (sjá mynd) eru strandfuglar, oftast gráir eða hvítir með svört svæði á höfði og vængjum? *… að '''[[Rijksmuseum]]''' hefur að geyma talsvert af málverkum hollensku meistaranna? *… að '''[[Bayern München]]''' hefur oftar orðið þýskur meistari og bikarmeistari en nokkurt annað félag? [[Mynd:International Court of Justice.jpg|100px|right|Friðarhöllin]] *… að '''[[Alexander Pope]]''' var [[England|enskt]] [[skáld]] sem er einkum þekktur fyrir ádeilukvæði og [[Hómer]]sþýðingar sínar? *… að '''[[fjallavíðir]]''' er aðlagaður lífi á Norðurslóðum og er sá runni sem þrífst nyrst á jörðinni? *… að '''[[Friðarhöllin]]''' (sjá mynd) hýsir ýmsar alþjóðastofnanir, þar á meðal [[Alþjóðadómstóllinn|Alþjóðadómstólinn]]? *… að '''[[handknattleiksárið 1957-58]]''' urðu [[Knattspyrnufélag Reykjavíkur|KR-ingar]] [[N1 deild karla|Íslandsmeistarar í karlaflokki]] í fyrsta og eina skipti? *… að '''[[hertogadæmi]]''' er [[lén]] sem heyrir undir [[hertogi|hertoga]]? [[Mynd:Maquette Bergen op Zoom.jpg|100px|right|Módel af Bergen op Zoom frá fyrri árum.]] *… að '''[[fjölvaskipun]]''' er í [[tölvunarfræði]] skipun sem skal skipt út fyrir fyrir fram skilgreinda runu setninga sem nefnast fjölvi? *… að '''[[Fagurskinna]]''' er [[Konungasögur|konungsaga]] sem fjallar um [[Noregskonungar|Noregskonunga]] frá Hálfdáni svarta (um 850) fram til 1177, þegar Sverrir Sigurðsson kom til sögunnar? *… að '''[[Bergen op Zoom]]''' (sjá mynd) myndaðist við samruna þriggja bæja á miðöldum? *… að '''[[óeirðirnar í London 2011]]''' hófust með [[Rán (glæpur)|ránum]] og íkveikjum [[6. ágúst]] [[2011]] í hverfinu Tottenham í Norður-London? *… að '''[[Robert Audi]]''' er málsvari kenningar sem hann nefnir brigðgenga bjarghyggju? [[Mynd:Achaemenid_Empire_~480_BC.png|100px|right|Persaveldi um 480 f.Kr.]] *… að '''[[tætifall]]''' er [[reiknirit]] sem breytir gögnum af mismunandi stærðum og gerðum í gildi sem nefnist tætigildi? *… að '''[[Persaveldi]]''' (sjá mynd) var veldi Akkæmenída frá um 550 f.Kr. til um 330 f.Kr? *… að '''[[handknattleiksárið 1980-81]]''' hafnaði [[Íslenska karlalandsliðið í handknattleik|karlalandsliðið]] í áttunda sæti á B-keppni í [[Frakkland|Frakklandi]]? *… að '''[[Latibær]]''' hefur verið sýndur í yfir 100 löndum á meira en tylft tungumála? [[Mynd:Casino sal.jpg|100px|right|Salur Casinoleikhússins]] *… að '''[[Nykurtala|nykurtölur]]''' stækka rauntöluásinn með stakinu ε þar sem ε<sup>2</sup> = 0. *… að '''[[Casinoleikhúsið]]''' (sjá mynd) hafði verið starfrækt í rúma öld þegar það var rifið árið [[1960]]? *… að '''[[Atlantic Airways]]''' var stofnað af danska flugfélaginu Cimber Air og færeyska ríkinu? *… að '''[[Rósastríðin]]''' hófust þegar Ríkharði 2. konungi var bolað frá völdum á fyrri hluta 15. aldar? *… að '''[[árásin á Perluhöfn]]''' var hluti af áætlun [[Japan]]a að verða stórveldi við [[Kyrrahafið]]? *… að '''[[kjarnasamruni]]''' verður þegar léttar frumeindir sameinast og mynda stærri kjarna? *… að '''[[Postverk Føroya]]''' var stofnað [[1. apríl]] [[1976]]? *… að '''[[Al Capone]]''' hóf glæpaferil sinn með því að vinna fyrir John Torrio í [[Chicago]] og tók við veldi hans árið [[1925]]? [[Mynd:Coa stgallen.svg|100px|right|Skjaldamerki St. Gallen]] *… að sögu '''[[lestrarfélag]]a''' má skipta í fjögur skeið á tímabilinu [[1790]]-[[1955]]? *… að '''[[færeyska lögþingið]]''' er eitt elsta lögþing heimsins? *… að '''[[mjöl]]''' er meginuppistaðan í [[brauð]]i? *… að '''[[St. Gallen]]''' (''sjá mynd'') í [[Sviss]] er fyrrum klausturríki? *… að '''[[Nýlistasafnið]]''' er sagt hafa opnað augu almennings fyrir fegurð samtímalistar? *… að '''[[færeyski fáninn]]''' var samþykktur af [[Bretland|Bretum]] í [[Seinni heimstyrjöldin]]ni? [[Mynd:Set_partition.svg|100px|right|Jafngildisvensl]] *… að '''[[Android]]''' stýrikerfið er þróað af Android Inc, fyrirtæki sem var keypt af Google árið 2005? *… að '''[[Rugludalur]]''' í [[Austur-Húnavatnssýsla|Austur Húnavatnssýslu]] dregur nafn sitt af því að ókunnugir rugla honum oft saman við [[Blöndudalur|Blöndudal]]? *… að '''[[Habsborgarar]]''' ríktu sem keisarar yfir [[Heilaga rómverska ríkið|Heilaga rómverska ríkinu]] frá 1438 til 1740? *… að '''[[Persónuleikaröskun|persónuleikaraskanir]]''' eru gagnlegar til að skilgreina hegðunarmynstur en ekki muninn á heilbrigði einstaklinga? *… að '''[[Jafngildisvensl]]''' (''sjá mynd'') er stærðfræðilegt hugtak sem lýsir venslum sem mynda sundurlæga skiptingu á mengi? *… að '''[[beinþynning]]''' er langvarandi sjúkdómur í beinum þar sem rýrnun verður á steinefnum og misröðun á innri byggingu beinsins? *… að '''[[Ferðaskrifstofa ríkisins]]''' var starfrækt á árunum 1936 til 1939? *… að '''[[Þriðji heimurinn]]''' var upphaflega skilgreindur sem lönd sem stóðu utan við bandalög risaveldanna í [[Kalda stríðið|Kalda stríðinu]]? [[Mynd:Tagore3.jpg|100px|right|Rabindranath Tagore]] *… að '''[[Mohamed ElBaradei]]''', fyrrverandi yfirmaður [[Alþjóða kjarnorkumálastofnunin|Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar]] fékk [[friðarverðlaun Nóbels]] árið 2005? *… að '''[[Gula fljót]]''' er vagga kínverskrar menningar? *… að '''[[127 Hours]]''' er sannsöguleg kvikmynd um fjallgöngumann sem festir höndina og neyðist til að saga hana af? *… að efnið '''[[Grafín]]''' er eitt atóm að þykkt? *… að '''[[Rabindranath Tagore]]''' (''sjá mynd'') fékk [[Bókmenntaverðlaun Nóbels]] árið 1913? [[Mynd:Chlorine_dioxide_solution.jpg|100px|right|Klórdíoxíðlausn]] *… að '''[[BBC One]]''' er vinsælasta sjónvarpstöð Bretlands? *… að '''[[Fæstosdiskurinn]]''' frá [[Krít (eyja)|Krít]] er ein af þekktustu óráðnu gátum [[fornleifafræði]]nnar? *… að skáldið '''[[Apolloníos frá Ródos]]''' var bókavörður í [[Bókasafnið í Alexandríu|bókasafninu í Alexandríu]]? *… að '''[[bankasýsla ríkisins]]''' skal hafa lokið störfum eigi síðar en árið 2015? *… að '''[[Sögufélag Skagfirðinga]]''' er elsta héraðssögufélag landsins, stofnað árið 1937? *… að '''[[klórdíoxíð]]''' (''sjá mynd'') er aðallega notað til að bleikja [[pappír]]? *… að samtökin '''[[Amnesty International]]''' fengu [[friðarverðlaun Nóbels]] árið 1977? *… að meðal þeirra yfirbóta sem nefndar eru í '''[[Skriftaboð Þorláks helga|Skriftaboðum Þorláks helga]]''' er að slá sjálfan sig með písk? *… að '''[[Agnes af Frakklandi, keisaraynja]]''' var orðin ekkja eftir tvo keisara [[Austrómverska keisaradæmið|Austrómverska keisaradæmisins]] fjórtán ára gömul? *… að ókennilegt fyrirbæri sem sást í [[Vestur-Virginía|Vestur-Virginíu]] 1966-1967 fékk heitið '''[[Mölflugumaðurinn]]''' eftir persónu í sjónvarpsþáttum um [[Leðurblökumaðurinn|Leðurblökumanninn]]? *… að stingfrumur '''[[brennihvelja|brennihvelju]]''' geta verið virkar í marga daga eftir að þær losna frá dýrinu? *… að '''[[Ríkharður ljónshjarta]]''' lærði aldrei að tala [[enska|ensku]]? *… að eldfjallið '''[[Teide]]''' á [[Tenerífe]] er hæsta fjall [[Spánn|Spánar]]? *… að í landi '''[[Hreðavatn]]s''' í [[Norðurárdalur (Borgarfirði)|Norðurárdal]] var einu sinni [[surtarbrandur|surtarbrandsnáma]]? *… að núverandi '''[[Skálholtskirkjur|Skálholtskirkja]]''' er sú tíunda frá upphafi? *… að '''[[sambandslagafrumvarpið]]''' var samþykkt með 92,5% atkvæða árið [[1918]]? *… að '''[[Dulminjasafn Reykjavíkur]]''' var til húsa við [[Skálholtsstígur|Skálholtsstíg]] 2 frá 1956 til loka [[1961-1970|7. áratugarins]]? *… að dómkirkjan í '''[[Speyer]]''' er stærsta [[rómönsk kirkja|rómanska kirkja]] heims? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Image:Umm_Kulthum_2.jpg|120px|Umm Kulthum]]</div> *… að árið [[1301]] kom fram kona sem sagðist vera '''[[Margrét Skotadrottning]]''' sem hafði látist á skipsfjöl ellefu árum fyrr? *… að egypska söngkonan '''[[Umm Kulthum]]''' (''sjá mynd'') var nefnd „reikistjarnan úr austri“? *… að '''[[hollenska veikin]]''' er ójafnvægi sem skapast í [[hagkerfi]] lands vegna aukinnar nýtingar [[náttúruauðlind]]a? *… að '''[[Net (stærðfræði)|net]]''' er framsetning sem táknar mengi hluta og hvernig þeir tengjast sín á milli? *… að Daninn '''[[Louis Zöllner]]''' átti 10% hlutafjár í [[Íslandsbanki|Íslandsbanka]] þegar hann var upprunalega stofnaður árið [[1904]]? *… að árið [[1968]] fórst fjöldi fjár í '''[[Reynishverfi]]''' þegar [[snjóflóð]] féll úr [[Reynisfjall]]i? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Image:6n-graf.svg|120px|Tölusett net með sex hnutum og sjö leggjum.]]</div> *… að '''[[hagahlynur]]''' (''Acer campestre'') er vinsælt [[dvergtré]]? *… að hugmyndir um '''[[Styttan af Ingólfi Arnarsyni á Arnarhóli|styttu af Ingólfi Arnarssyni á Arnarhóli]]''' má rekja til miðrar [[19. öldin|19. aldar]]? *… að '''[[Upptyppingar]]''' í [[Ódáðahraun]]i mynduðust við [[eldgos]] undir [[jökull|jökli]] við lok síðasta [[jökulskeið]]s? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Solar_cell.png|120px|Sólarsella]]</div> *… að aðalnotkun '''[[sólarsella]]''' í heiminum er á afskekktum stöðum þar sem önnur raforkuframleiðsla yrði of dýr? *… að litarefnið '''[[úmbra]]''' kemur fyrir í þremur [[litur|litatónum]]: hrá, brennd og hrein úmbra? *… að orð sem sýnast jafngild í tveimur [[tungumál]]um en hafa í raun ólíka merkingu eru kölluð '''[[falsvinir]]'''? *… að hætt var að nota '''[[hraunhitaveita|hraunhitaveituna]]''' í [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] árið 1988? *… að verðgildi [[gjaldmiðill|gjaldmiðils]] á '''[[gullfótur|gullfæti]]''' getur sveiflast vegna breytinga á framboði [[gull]]s? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:OB090126c-3053_Bessastadir.JPG|120px|Bessastaðakirkja]]</div> *… að '''[[Eldgosið við Eyjafjallajökul 2010|eldgos við Eyjafjallajökul]]''' 2010 er það fyrsta í jöklinum frá 1821? *… að '''[[Bessastaðakirkja]]''' (''sjá mynd'') var reist utan um eldri timburkirkju sem síðan var rifin? *… að bandaríska leikkonan '''[[Khandi Alexander]]''' úr [[CSI: Miami]] vann sem [[dans]]höfundur fyrir [[Whitney Houston]]? *… að '''[[stjörnugægjar]]''' eru [[wikt:en:botnlægur|botnlægir]] [[fiskur|fiskar]] sem lama bráð sína með [[rafstraumur|rafstraumi]]? *… að skrifstofubyggingin '''[[Arnarhvoll]]''' var byggð á árunum [[1929]]-[[1930|30]] vegna þess að leiga á skrifstofum ríkisins um allan bæ var of dýr? *… að elstu heimildir sem tengja '''[[heilagur Georg|heilagan Georg]]''' og [[Dreki (goðsagnavera)|dreka]] eru frá [[11. öldin|11. öld]]? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:George_novgorod.jpg|120px|Heilagur Georg]]</div> *… að ef [[Ísland]] og [[Noregur]] hefðu ekki gerst aðilar að [[Schengen-samstarfið|Schengen-samstarfinu]] hefði '''[[Norræna vegabréfasambandið]]''' fallið niður? *… að á '''[[Vetrarólympíuleikarnir 1994|Vetrarólympíuleikunum 1994]]''' tók [[Rússland]] þátt með eigið lið í fyrsta sinn frá árinu 1912? *… að elsta málverkið í '''[[Alte Pinakothek (München)|Alte Pinakothek]]''' í [[München]] er [[síðasta kvöldmáltíðin|kvöldmáltíðarmynd]] eftir [[Giotto]] frá 1306? *… að [[Alþýðulýðveldið Kína|Kína]] er stærsti '''[[hvítlaukur|hvítlauksframleiðandi]]''' heims? *… að hirðstjórinn '''[[Ívar Vigfússon hólmur]]''' fékk það verkefni 1361 að safna öllum [[páfi|páfatekjum]] af ríkjum [[Noregur|Noregs]]? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Arctic_Hare.jpg|120px|Snæhéri]]</div> *… að glímukappinn [[Jóhannes Jósefsson]] keppti fyrstur Íslendinga á '''[[Sumarólympíuleikarnir 1908|ólympíuleikum 1908]]'''? *… að '''[[snæhéri]]''' (''sjá mynd'') lifir bæði á [[Grænland]]i og í [[Færeyjar|Færeyjum]] en ekki á [[Ísland]]i? *… að '''[[Haraldur harðráði]]''' átti tvær eiginkonur samtímis? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Islande_plage_Raudisandur.jpg|120px|Rauðisandur í Barðastrandarsýslu]]</div> *… að [[umhverfisstofnun]] stefnir að því að friðlýsa '''[[Rauðisandur|Rauðasand]]''' (''sjá mynd'') í áföngum? *… að '''[[Óðinstorg]]''' var áður sölustaður fisksala sem seldu fisk úr vögnum? *… að '''[[Weierstrassfallið]]''' er [[samfellt fall]] sem er hvergi [[deildun|deildanlegt]]? *… að '''[[Google Earth]]''' sýnir ekki bara loftmyndir af [[Jörðin]]ni heldur líka [[Tunglið|Tunglinu]] og plánetunni [[Mars (pláneta)|Mars]]? *… að nyrsta [[dómkirkja]] á [[Bretlandseyjar|Bretlandseyjum]] er '''[[Magnúsarkirkja (Orkneyjum)|Magnúsarkirkja]]''' í [[Orkneyjar|Orkneyjum]]? *… að '''[[Spandau]]''' var sérstök borg til ársins 1920 þegar hún varð hverfi í [[Berlín]]? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:St_Magnus_Cathedral_Kirkwall.jpg|120px|Magnúsarkirkja í Orkneyjum]]</div> *… að stærsti [[flugvél]]aframleiðandi heims er bandaríska fyrirtækið '''[[Boeing]]'''? *… að '''[[Hákon Aðalsteinsfóstri]]''' þurfti að ganga af [[kristni]]nni þegar hann gerðist [[Noregskonungur]] um árið 935? *… að landamærastöðin '''[[Checkpoint Charlie]]''' í [[Berlín]] [[Kalda stríðið|Kalda stríðsins]] var aðeins fyrir diplómata? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:CheckpointCharlie1989.jpg|120px|Checkpoint Charlie í nóvember 1989]]</div> *… að '''[[þörungar]]''' skiptast í [[plöntusvif]] og [[botnþörungar|botnþörunga]]? *… að fimmtán bækur hafa komið út í myndasögubókaröðinni '''[[Goðheimar]]''' en aðeins fimm verið þýddar á [[íslenska|íslensku]]? *… að '''[[skjaldarmerki Þýskalands]]''' á rætur sínar að rekja til [[Karlamagnús]]ar sem tók það upp eftir [[Rómaveldi|Rómverjum]]? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Chess_piece_-_Black_knight.JPG|60px|Svartur riddari í skák]]</div> *… að '''[[sýnineysla]]''' er neysla sem ætlað er að sýna fram á mikinn [[kaupmáttur|kaupmátt]] neytandans? *… að '''[[tveggja riddara tafl]]''' er algengt svar við '''[[ítalskur leikur|ítölskum leik]]''' í [[skák]]? *… að '''[[Bartolomeo Cristofori]]''' þróaði fyrsta [[píanó]]ið fyrir ríkisarfann í hertogadæminu [[Toskana]]? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;"></div> *… að bókin '''''[[Auðfræði]]''''' sem kom út árið [[1880]] er fyrsta íslenska fræðiritið um [[hagfræði]]? *… að fjallið '''[[Mocho-Choshuenco]]''' (''sjá mynd'') er tvöföld [[eldkeila]] í [[Andesfjöll]]um í [[Chile]]? *… að landkönnuðurinn '''[[Pýþeas]]''' var frá grískri nýlendu í Suður-[[Frakkland]]i þar sem nú er borgin [[Marseille]]? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Roman_Baths_in_Bath_Spa,_England_-_July_2006.jpg|150px|Rómversku böðin í Bath]]</div> *… að enska borgin '''[[Bath]]''' (''sjá mynd'') var byggð í kringum einu náttúrulegu [[hver]]ina á [[Bretland]]i? *… að stjörnumerkið '''[[Gaupan]]''' heitir ''Lynx'' á latínu og er sjáanlegt frá [[Ísland]]i? *… að öll stökin í '''[[hornalínufylki]]''' sem eru utan aðalhornalínunnar hafa gildið [[núll]]? *… að [[sæstrengur]]inn '''[[DANICE]]''' sem var tekinn í notkun 31. ágúst 2009 var lagður til að styðja við rekstur [[netþjónabú]]a á [[Ísland]]i? *… að '''[[Olís]]''' keypti allt hlutafé í versluninni [[Ellingsen]] árið 1999? *… að '''[[Torfi Jónsson í Klofa]]''' bjó á [[Hvammur í Dölum|Hvammi í Dölum]] og í [[Hjörsey]] á [[Mýrar|Mýrum]] áður en hann flutti að Klofa í [[Rangárvallasýsla|Rangárvallasýslu]]? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Barley_wines.png|150px|Tvenns konar byggvín]]</div> *… að '''[[byggvín]]''' (''sjá mynd'') er í raun mjög sterkur [[bjór (öl)|bjór]]? *… að '''[[Konunglega norska vísindafélagið]]''' hét upphaflega „Þrándheimsfélagið“? *… að í [[Færeyjar|Færeyjum]] nefnist höfuð [[Færeyska heimastjórnin|heimastjórnarinnar]] '''[[lögmaður Færeyja|lögmaður]]'''? *… að danski rannsóknarsjóðurinn '''[[Carlsbergsjóðurinn]]''' sem [[Vísindafélagið danska]] skipar stjórn í á 51% í bjórframleiðandanum [[Carlsberg]]? *… að sjónvarpsþættirnir '''''[[CSI: Crime Scene Investigation]]''''' sem gerast í [[Las Vegas]], [[Nevada]], eru kvikmyndaðir í [[Kalifornía|Kaliforníu]]? *… að fyrsta starfsár '''[[Bessastaðaskóli|Bessastaðaskóla]]''' voru þar 27 nemendur; sá yngsti sautján ára og sá elsti 28 ára? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:London_,_Kodachrome_by_Chalmers_Butterfield_edit.jpg|150px|Shaftesbury Avenue árið 1949.]]</div> *… að hverfið '''[[West End (London)|West End]]''' í [[London]] (''sjá mynd'') heitir svo vegna þess að það er vestan megin við [[Charing Cross]]? *… að algengasta [[steind]] á Íslandi er '''[[kvars]]'''? *… að í ''[[Gorgías]]i'' heldur '''[[Kallíkles]]''' því fram að það sé ósanngjarnt af hinum veikari að hefta hina sterkari með [[lög]]um? *… að [[Kvennalandslið Íslands á EM 2009|kvennalandslið Íslands]] í knattspyrnu keppir á [[EM 2009]]? *… að þegar '''[[Lucius Verus]]''' sneri aftur til [[Róm]]ar eftir að hafa gersigrað [[Parþar|Parþa]] árið 167 bar herinn með sér sjúkdómsfaraldur ([[bólusótt]] eða [[mislingar|mislinga]]) sem stóð í fimmtán ár? *… að bærinn ''Syðsta-Grund'' í [[Skagafjörður|Skagafirði]] hét öldum saman ''Róðugrund'' eftir krossi sem reistur var á staðnum þar sem [[Brandur Kolbeinsson]] var tekinn af lífi eftir '''[[Haugsnesbardagi|Haugsnesbardaga]]''' 1246? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Distoleon_tetragrammicus01.jpg|150px|Maurljón]]</div> *… að kjörorð [[Landhelgisgæsla Íslands|Landhelgisgæslu Íslands]], „Föðurland vort hálft er hafið“ er úr kvæði eftir skáldið '''[[Jón Magnússon (skáld)|Jón Magnússon]]'''? *… að munurinn á '''[[snakkur|snakk]]''' og '''[[tilberi|tilbera]]''' er að sá fyrrnefndi vefur upp á sig en sá síðarnefndi sýgur í sig? *… að '''[[maurljón]]''' eða '''sandverpur''' (''sjá mynd'') veiða [[skordýr]] ofan í holu með því að ausa yfir þau sandi? *… að '''[[rætt fall]]''' er fall sem er [[hlutfall]] tveggja [[margliða]]? *… að samkvæmt íslenskri þjóðtrú átti '''[[tungljurt]]''' eða '''lásagras''' að opna læsta lása væri hún borin upp að þeim? *… að um 1980 kom upp sú hugmynd að byggja yfir '''[[Læragjá]]''' í [[Nauthólsvík]]? *… að lengri gerð '''''[[Böglunga sögur|Böglunga sagna]]''''' er aðeins til heil í [[danska|danskri]] þýðingu frá 1600? *… að fyrstu [[peningar|peningaseðlar]] í [[Evrópa|Evrópu]] voru gefnir út í [[Svíþjóð]]? *… að '''[[lokhljóð]]''' (s.s. „P“, „G“ og „T“) eru hljóð sem myndast við það að lokast fyrir útstreymi loftsins um munninn? <div style="width:150px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Lettlest_adalskipulag2001-2024.svg|150px|Leiðarkerfi léttlestakerfisins]]</div> *… að '''[[Fiat Uno]]''' var valinn ''[[Bíll ársins]]'' í Evrópu árið 1984? *… að '''[[Léttlestakerfi höfuðborgarsvæðisins]]''' (''sjá mynd'') er hugmynd um framtíð [[almenningssamgöngur|almenningssamgangna]] í [[Reykjavík]] sem byggir á notkun [[léttlest]]a? *… að höggmyndin '''[[Sverð í kletti]]''' eftir [[Fritz Røed]] er minnisvarði um [[Hafursfjarðarorusta|Hafursfjarðarorustu]] sem átti sér stað í Noregi á [[9. öldin|9. öld]]? *… að kvikmyndin '''''[[Ekta grískt brúðkaup]]''''' frá 2002 er tekjuhæsta [[rómantísk gamanmynd|rómantíska gamanmynd]] allra tíma? *… að fyrstu íslensku '''[[plötusnúður|plötusnúðarnir]]''' störfuðu í [[Tónabær|Tónabæ]]? *... að '''[[fjallafura]]''' er stundum gróðursett undir gluggum og við niðurföll til að hindra innbrotsþjófa? *... að fyrsta ferð '''[[landpóstur|landpóstsins]]''' á Íslandi var farin árið [[1782]]? *... að '''[[Þjóðmálastofnun]]''' er sjálfstæð rannsóknarstofnun innan Háskóla Íslands. sem hefur það að markmiði að efla rannsóknir og upplýsingamiðlun á sviði velferðar, atvinnu og þjóðfélagsbreytinga? *... að legsteinn '''[[Till Ugluspegill|Ugluspegils]]''' hefur staðið í [[Mölln]] í [[Þýskaland]]i frá því á [[16. öldin|16. öld]]? *... að '''[[Jack Holt]]''' var frumkvöðull í hönnun ódýrra [[kæna]] úr [[krossviður|krossviði]] eftir [[Síðari heimsstyrjöld]]? *... að '''[[súna]]''' er [[smitsjúkdómur]] sem getur borist milli [[dýr]]a og [[maður|manna]]? <div style="width:130px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Till_Eulenspiegel.jpg|100px|Till Ugluspegill.]]</div> *... að '''[[snjór]]''' er [[vatn]]s[[úrkoma]] sem er á [[efnisform|formi]] [[kristall|kristallaðs]] [[ís]]s, en snjór samanstendur af mörgum óreglulegum og einstökum [[korn]]um sem nefnast [[snjókorn]]? *... að '''[[Xfce]]''' er [[gluggaumhverfi]] fyrir [[Unix-lík]] stýrikerfi sem er hannað til þess að þurfa minna [[vinnsluminni]] en önnur gluggaumhverfi. *... að söngkonan '''[[Leoncie]]''' er [[kaþólska|kaþólsk]]? *... að konum hefur verið vísað úr '''[[Sundlaugar og laugar á Íslandi|sundlaugum á Íslandi]]''' fyrir að vera [[berbrjósta]] þó að það sé löglegt? *... að '''[[nafnháttarmerki]]ð''' er einfaldasti orðflokkurinn í íslensku en hann innihaldur bara eitt orð; smáorðið „að“? *... að '''[[Barnafoss]]''' hét líklega ''Bjarnafoss'' áður fyrr? *... að '''[[Tintron]]''' er [[hellir]] og [[gervigígur]] við Lyngdalsheiðarveg á milli [[Þingvellir|Þingvalla]] og [[Laugarvatn]]s? *... að verkið '''[[Nimis]]''' eftir sænska listamanninn [[Lars Vilks]] er miðja „ríkisins“ [[Ladónía|Ladóníu]] sem lýsti yfir sjálfstæði frá [[Svíþjóð]] árið [[1996]]? <div style="width:130px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Barnafoss_2004.jpg|130px|right]]</div> *... að '''[[Uttar Pradesh]]''' er fjölmennasta ríki [[Indland]]s, með yfir 190 milljón íbúa? <div style="width:130px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Nimis_torn_2002.jpg|130px|right]]</div> *... að '''''[[Ferðin til Limbó]]''''' var fyrsta leikritið sem [[Þjóðleikhúsið]] setti upp eftir íslenska konu? *... að hundruðum ára munar á mati manna á aldri '''[[Draumkvæðið|Draumkvæðisins]]''' og enginn veit fyrir víst hvernig það er samsett? *... að sveppurinn '''[[hnyð]]''' (''Ichthyophonus hoferi'') er talinn hafa átt þátt í hruni norska [[síld]]arstofnsins 1991-1993? <div style="width:130px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Gregor_Mendel.png|130px|right]]</div> *... að fyrsti '''[[Kaupum ekkert-dagurinn]]''' var haldinn hátíðlegur í [[Vancouver]] árið 1992? *... að '''[[Gregor Mendel]]''' (sjá mynd) sem kallaður er „faðir erfðafræðinnar“, gerði tilraunir sínar á [[gráerta|gráertum]]? *... að '''[[Steingrímsstöð]]''', efsta virkjunin í [[Sogið|Soginu]], er jafnframt sú yngsta, tekin í notkun 1959? *... að '''[[hvítblinda]]''' er truflun á [[sjón]] sem lýsir sér í því að allt rennur saman í eina hvíta heild? *... að [[Holland|hollenska]] [[eurodance]]-hljómsveitin '''[[Vengaboys]]''' gaf út fjórar [[breiðskífa|breiðskífur]] sem seldust samtals í 15 milljónum eintaka? *... að '''[[stálormur]]''' er [[eðla|eðlutegund]] sem er án útlima og fæðir lifandi afkvæmi? <div style="width:130px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Anguidae.jpg|130px|right]]</div> *... að '''[[Baðhúsfélag Reykjavíkur]]''' var stofnað um leið og fyrsta [[baðhús]]ið var opnað í [[Reykjavík]] árið [[1895]]? *... að siglingamaðurinn '''[[Torben Grael]]''' er sá [[Brasilía|Brasilíumaður]] sem flest verðlaun hefur hlotið á [[Ólympíuleikar|Ólympíuleikum]], alls fimm verðlaun? *... að '''[[lífhreinsun]]''' er [[líftækni]] þar sem [[örvera|örverum]], [[sveppur|sveppum]], [[planta|plöntum]] eða [[ensím|ensímum]] þeirra er beitt til að hreinsa upp mengun? *... að '''[[Íslensk orðsifjabók]]''' er [[orðsifjabók]] eftir [[Ásgeir Blöndal Magnússon]] með 25.000 [[íslenska|íslenskum]] uppflettiorðum sem var fyrst gefin út árið [[1989]]? <div style="width:130px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Hardangerfjord01.jpg|130px|right]]</div> *... að '''[[Harðangursfjörður]]''' (sjá mynd) er þriðji lengsti fjörður í heimi? *... að '''[[skór]]''' samanstanda af sóla, yfirleðri og hæl? *... að '''[[Guðrún Lárusdóttir]]''' og tvær dætur hennar drukknuðu í [[Tungufljót (Árnessýslu)|Tungufljóti]] eftir að bíll sem þær voru farþegar í fór út af veginum? *... að '''[[Rögnvaldur Ólafsson]]''' (1874-1917) var fyrsti Íslendingurinn sem nam [[byggingarlist]]? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Alberti PA.jpg|90px|right]]</div> *... að '''[[Amy MacDonald (söngkona)|Amy MacDonald]]''' er fædd í [[Bishopbriggs]] í Skotlandi? *... að '''[[Hjörsey]]''' (5,5 km²) er þriðja stærsta eyjan við Ísland? *... að '''[[Peter Adler Alberti]]''' (sjá mynd) dómsmálaráðherra Danmerkur og [[Íslandsráðherra]] dó árið [[1932]] af völdum áverka eftir að sporvagn keyrði á hann? *... að bandaríski rithöfundurinn '''[[J. D. Salinger]]''' hefur ekki veitt viðtal síðan 1980 og hefur ekki gefið út verk síðan 1965? *... að falli '''[[lauf]]blöð''' af plöntu á haustin er hún sögð [[sumargræn jurt|sumargræn]], en ef ekki er hún [[sígræn jurt|sígræn]]? *... að '''[[MiFID]]''' er tilskipun samþykkt [[1. nóvember]] [[2007]] sem kveður á um aukna samkeppni og neytendavernd í fjárfestingaþjónustu innan [[Evrópska efnahagssvæðið|EES]]? *... að '''[[Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur|Æskulýðsráð Reykjavíkur]]''', stofnað [[1956]], sá í byrjun um rekstur „tómstundaheimilis“ við Lindargötu? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Airbus_A380.jpg|90px|right]]</div> *... að '''[[Gúttóslagurinn]]''' átti sér stað við [[Góðtemplarahúsið í Reykjavík]] á horni Templarasunds og Vonarstrætis þar sem bæjarstjórnarfundir voru þá haldnir? *... að '''[[breiðþota]]''' (''sjá mynd'') er [[farþegaflugvél]] með tvo gangvegi og sjö til tíu farþega í hverri sætaröð? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Bjarni Vigfusson Thorarensen portrait by Auguste Mayer.jpg|90px|right]]</div> *... að '''[[möttulstrókurinn undir Íslandi]]''' er einn öflugasti [[möttulstrókur]] heims? *... að '''[[Hólmgarður]]''' er elsti slavneski bærinn sem heimildir eru um í Rússlandi? *... að segja má að '''[[jarðsaga Íslands]]''' hefjist fyrir um 50-60 milljónum ára? *... að '''[[setlagafræði]]''' er grein [[jarðvísindi|jarðvísinda]] sem fjallar um [[set]] í víðu samhengi? *... að algengasta [[Ættarnöfn á Íslandi|íslenska ættarnafnið]] er '''[[Thorarensen]]''' (''sjá mynd af [[Bjarni Thorarensen|Bjarna Thorarensen]]'')? *... að '''[[vörtusvín]]''' sjá illa en nota gott lyktarskyn til að leita að fæðu? *... að '''[[Norður-Atlantshafssveiflan]]''' sýnir loftþrýstingsmun milli [[Ísland]]s og [[Asóreyjar|Asóreyja]]? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Nao_indices_comparison.jpg|50px|right]]</div> *... að '''[[Búnaðarsamband Suðurlands]]''' átti fyrst að sjá um kennslu í búháttum en rekur nú m.a. ráðunautaþjónustu? *... að '''[[Kambríumtímabilið]]''' markar upphaf sýnilegs lífs? *... að ''[[Píanósónata nr. 14 (Beethoven)|Quasi una fantasia]]'' eftir [[Ludwig van Beethoven]] er betur þekkt sem '''''[[Píanósónata nr. 14 (Beethoven)|Tunglskinssónatan]]'''''? *... að þegar dunur heyrast í [[ís]] á [[stöðuvatn|stöðuvötnum]] sem springur er sagt að '''[[nykur]]inn''' hneggi? *... að bæði [[fuglar]] og [[slöngur]] teljast til '''[[ferfætlingar|ferfætlinga]]''' sem er yfirflokkur [[hryggdýr]]a? *... að '''[[Sigurður Þórarinsson]]''' jarðfræðingur var einnig skáld og samdi m.a. ''Þórsmerkurljóð'', ''Vorkvöld í Reykjavík'' og ''Að lífið sé skjálfandi lítið gras''? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;"></div> *... að ''LOVE'' (''sjá mynd'') er eitt þekktasta verk bandaríska myndlistarmannsins '''[[Robert Indiana|Roberts Indiana]]'''? *... að '''[[tjara]]''' er seigfljótandi svartur [[vökvi]] sem áður var unninn með því að þurreima [[viður|við]]? *... að '''[[minnsta samfeldi]]''' tveggja talna a og b er táknað msf(a,b) og '''[[stærsti samdeilir]]''' er táknaður ssd(a,b)? *... að áin '''[[Sava]]''' rennur frá [[Slóvenía|Slóveníu]] og suður til [[Belgrad]] í [[Serbía|Serbíu]] þar sem hún mætir [[Dóná]]? *... að '''[[klaufaveiki]]''' er helti í [[nautgripur|kúm]] vegna bólgu í [[klaufir|klaufum]]? *... að '''[[desíbel|bel]]kvarðinn''' er [[logri|lograkvarði]] sem er kenndur við [[Alexander Graham Bell]]? *... að fyrsta '''[[Keflavíkurganga]]n''' var gengin þann [[19. júní]] [[1960]]? *... að vopnuð [[sérsveit]] norsku lögreglunnar, '''[[Beredskapstroppen]]''', hefur á að skipa sjötíu lögreglumönnum? *... að [[Jónas Jónsson frá Hriflu]] átti í mestu '''[[Listamannadeilan|deilum]]''' við hóp íslenskra myndlistamanna um hvað teldist list árið 1942? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Ayasofya_2006-3.JPG|100px|right]]</div> *... að kirkjan '''[[Ægisif]]''' í [[Konstantínópel]] (sjá mynd) var stærsta [[dómkirkja]] heims í hartnær þúsund ár? *... að '''[[varaforseti Bandaríkjanna]]''' er jafnframt forseti [[öldungadeild Bandaríkjaþings|öldungadeildar Bandaríkjaþings]]? *... að '''[[frumutala]]''' mjólkur getur verið mælikvarði á júgurheilbrigði hjá kúm? *... að danski fornleifafræðingurinn '''[[Christian Jürgensen Thomsen]]''' átti hugmyndina að því að skipta forsögu mannsins í [[steinöld]], [[bronsöld]] og [[járnöld]]? *... að '''[[Reykjavíkurbiblía]]''' [[1859]] var síðasta útgáfa [[biblía|biblíunnar]] á [[íslenska|íslensku]] sem innihélt [[apókrýfar bækur]] [[gamla testamentið|gamla testamentisins]] fram að [[Biblía 21. aldar|Biblíu 21. aldar]]? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Christianj%C3%BCrgensenthomsen.png|100px|right]]</div> *... að '''[[kvikmyndir.is]]''' er íslenskur kvikmyndavefur sem var stofnaður árið 1997? *... að '''[[Bjarni Halldórsson á Þingeyrum]]''' hélt síðustu [[Gleði (veisla)|gleði]] á Íslandi árið [[1757]]? *... að '''[[Rutherford B. Hayes]]''' var kosinn [[forseti Bandaríkjanna]] árið [[1876]] með aðeins eins atkvæðis mun? *... að '''[[Sigrún Þorsteinsdóttir]]''' fékk 5,3% atkvæða í '''[[Forsetakosningar 1988|forsetakosningunum 1988]]'''? *... að talið er að '''[[Axlar-Björn]]''' hafi myrt átján manns í allt? *... að nafn '''[[Mógúlveldið|Mógúlveldisins]]''' er dregið af [[persneska]] orðinu yfir [[mongólar|mongóla]]? *... að '''[[ljóstvistur|ljóstvistar]]''' sem gefa [[innrautt ljós]] eru notaðir m.a. í fjarstýringum? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Eyrnamark.jpg|100px|right]]</div> *... að leikritið '''''[[Galdra–Loftur]]''''' eftir [[Jóhann Sigurjónsson]] kom út á [[danska|dönsku]] árið [[1915]] undir heitinu ''Ønsket'' eða „Óskin“? *... að '''[[eyrnamark|eyrnamörk]]''' á [[sauðfé]] (''sjá mynd'') skiptast í ''yfirmark'', sem skerðir eyrnabrodd, og ''undirben'', sem skerða hliðar eyrans? *... að '''[[Janez Janša]]''', núverandi forsætisráðherra [[Slóvenía|Slóveníu]], sat í hálft ár í fangelsi fyrir að hafa hernaðarleyndarmál undir höndum? *... að það var '''[[Brandur Sæmundsson]]''', biskup á [[Hólar í Hjaltadal|Hólum]], sem vakti máls á helgi [[Þorlákur Þórhallsson|Þorláks Þórhallssonar]] Skálholtsbiskups við [[Alþingi]]? *... að '''[[Halldór H. Jónsson]]''' arkitekt sem m.a. teiknaði [[Háteigskirkja|Háteigskirkju]] og [[Áburðarverksmiðjan í Gufunesi|Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi]] var nefndur „stjórnarformaður Íslands”? *... að viðgerð '''[[Niðarósdómkirkja|Niðaróssdómkirkju]]''' í Noregi hófst árið 1869 en lauk ekki fyrr en árið 2001? *... að haldin var listasýningin ''Tukt'' fyrir opnum dyrum í '''[[Síðumúlafangelsið|Síðumúlafangelsinu]]''' áður en fangelsinu var lokað? *... að ætlunin er að öll orka Íslands verði af '''[[endurnýjanleg orka|endurnýjanlegum uppruna]]''' árið [[2050]]? *... að [[Sovétríkin|Sovétmenn]] opnuðu '''[[Norðausturleiðin]]a''' fyrir reglulega skipaumferð árið [[1935]]? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Nidarosdomen west front plan christie 1903.jpg|100px|right]]</div> *... að '''[[PostSecret]]''' er vefur þar sem fólk sendir inn nafnlaus póstkort með leyndarmálum sínum? *... að dæmi eru um að [[fyrirtæki]] á Íslandi séu með meira en helming af bókfærðum eignum í formi '''[[viðskiptavild]]ar'''? <div style="width:95px;margin:4px;float:right;">[[Mynd:Hvannadalshn%C3%BAkur_in_%C3%96r%C3%A6faj%C3%B6kull_seen_from_Skaftafell.jpg|95px|right]]</div> *... að '''[[Öræfajökull]]''' (''sjá mynd'') hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma? *... að '''[[Draumur konu fiskimannsins]]''' er erótísk [[Japan|japönsk]] [[tréútskurður|tréútskurðarmynd]] sem sýnir konu eiga samræði við tvo kolkrabba? *... að '''[[Jack Nicholson]]''' hélt að afi hans og amma væru foreldrar hans þar til hann var orðinn 37 ára gamall? *... að '''[[Arnljótur Ólafsson]]''' er álitinn fyrsti íslenski [[hagfræði]]ngurinn þrátt fyrir að hafa ekki lokið prófi? *... að '''[[Gjögur]]''' á [[Strandir|Ströndum]] var fræg hákarlaveiðistöð á 19. öld? [[Mynd:JackNicholson%28PhotoCallCannes%29.JPG|100px|right]] *... að [[Framsóknarflokkurinn|Framsóknarflokkur]] og [[Sjálfstæðisflokkurinn|Sjálfstæðisflokkur]] hafa myndað meirihluta í '''[[Bæjarstjórnarkosningar í Kópavogi|bæjarstjórn Kópavogs]]''' síðan [[1990]]? *... að '''[[Arnar Jónsson]]''' hefur leikið flest aðalhlutverk allra íslenskra leikara á sviði, yfir 60 aðalhlutverk? *... að í '''[[taugavísindi|taugavísindum]]''' skoða menn byggingu taugakerfisins, virkni þess og þroska? *... að '''[[Ivy League]]''' háskólarnir hafa á sér það orð að vera með bestu háskólum [[Bandaríkin|Bandaríkjanna]]? *... að sonur höfundar teiknimyndasagnanna '''[[Ást er...]]''' tók við eftir andlát hennar? *... að '''[[Þuríður formaður]]''' kom upp um þá sem frömdu '''[[Kambsránið]]''' því hún gat borið kennsl á skó og járnflein sem ræningjarnir skildu eftir á ránsstað? [[Mynd:Freising manuscript.jpg|100px|right]] *... að '''[[Áburðarverksmiðjan í Gufunesi|Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi]]''' var lokað fyrr en áætlað var vegna öflugrar sprengingar í október 2001? *... að skáldsagan '''[[Gangandi íkorni]]''' eftir [[Gyrðir Elíasson|Gyrði Elíasson]] er súrrealísk fantasía sem kom fyrst út [[1987]]? *... að '''[[Freising-handritin]]''' (sjá mynd) eru elsta skjalið sem til er á [[slóvenska|slóvensku]]? *... að rithöfundurinn '''[[Joseph Conrad]]''' var af pólskum ættum og hét réttu nafni ''Teodor Józef Konrad Korzeniowski''? *... að '''[[sletta]]''' er orð úr erlendu máli sem ekki hefur aðlagast hljóð- og beygingarkerfinu, öfugt við '''[[tökuorð]]''' sem hefur aðlagast málinu? *... að '''[[Gull-Ívar Grjótharði]]''' kom fyrst fram í sögunni ''The Second Richest Duck'' eftir [[Carl Barks]] árið [[1956]]? *... að '''''[[Áramótaskaup 1966|Áramótaskaupið 1966]]''''' fylgdi á eftir árlegri áramótaútvarpsdagskrá [[Ríkisútvarpið|Ríkisútvarpsins]]? *... að '''[[Sinalco]]''', sem fyrst kom á markað [[1902]], er elsta [[gosdrykkur|gosdrykkjamerki]] [[Evrópa|Evrópu]]? *... að merki um '''[[spatt]]''' hafa fundist í beinum [[hestur|hesta]] í [[kuml]]um frá [[landnámsöld]]? [[Mynd:IcelandicHorseInWinter.jpg|140px|right|]] *... að hljómplatan '''''[[A Momentary Lapse of Reason]]''''' var fyrsta platan sem [[Pink Floyd]] gerði án [[Roger Waters]]? *... að '''[[bengalska]]''' er fimmta mest talaða [[tungumál]]ið í heiminum í dag? *... að í ritinu '''''[[Hagstjórnin]]''''' eftir [[Grikkland hið forna|Forn-Grikkjann]] [[Xenofon]] er m.a. fjallað um þrælahald, trúarbrögð og menntun? [[Mynd:Hoba_Meteorite.jpg|140px|right|]] *... að '''[[Hoba-loftsteinninn]]''' (''sjá mynd'') hefur legið óhreyfður þar sem hann lenti nálægt Hoba West-bóndabænum í [[Namibía|Namibíu]] fyrir um 80.000 árum síðan? [[Mynd:Dyrh%C3%B3laey_2006.jpg|140px|right|]] *... að '''[[Dyrhólaey]]''' er ekki eyja heldur móbergsstapi sem skagar út í sjó? *... að '''[[kakemono]]''' er austurasískt [[málverk]] á pappírs- eða silkirenningum sem eru festir við kefli að neðanverðu? *... að '''[[maurar]]''' eru [[félagsskordýr]] sem tilheyra ættbálki æðvængja líkt og [[vespur]] og [[býflugur]]? *... að '''[[varpasveifgras]]''' þykir ágætis beitarplanta en þykir ekki æskileg í túnum og er talin til illgresis? [[Mynd:Ketch-rigged-galeas.png|140px|right|]] *... að '''[[Brown-háskóli]]''' er eini háskóli Bandaríkjanna sem býður upp á grunnnám í [[Egyptaland]]sfræðum? *... að '''[[Johan Nicolai Madvig|Johan Madvig]]''' gagnrýndi harkalega viðhorf [[Theodor Mommsen|Theodors Mommsen]] til stjórnartíðar [[Júlíus Caesar|Júlíusar Caesars]] í riti sínu um stjórnskipun Rómaveldis? *... að forskeytið „fót-“ í '''[[amerískur fótbolti|amerískum fótbolta]]''' kemur til af því að hann er leikinn á fótum en ekki t.d. á [[hestur|hestbaki]]? *... að '''[[innsetningarröðun]]''' tekur lengstan tíma þegar inntakinu er raðað í öfuga röð? *... að '''[[kentári|kentárar]]''' eru einnig nefndir ''mannfákar'' eða ''elgfróðar''? *... að '''[[Henry Liddell]]''' var [[England|enskur]] [[fornfræði]]ngur og faðir [[Alice Liddell]] sem var fyrirmyndin að ''[[Lísa í Undralandi|Lísu í Undralandi]]''? *... að '''[[galías]]''' (''sjá mynd'') var tvímastra, breitt [[seglskip]] sem tíðkaðist nokkuð í [[Ísland]]ssiglingum á [[þilskipaöldin|þilskipaöld]]? *... að '''[[Ragnhildur Helgadóttir]]''' var kosin [[forseti Alþingis]] fyrst kvenna árið [[1961]]? *... mikil fiskvinnsla er stunduð í '''[[Klakksvík]]''' sem er næst stærsti bær [[Færeyjar|Færeyja]]? *... húsið '''[[Skriðuklaustur]]''' sem rithöfundurinn [[Gunnar Gunnarsson]] lét reisa [[1939]] er teiknað af þýskum arkitekt? *... þegar kennsla hófst við '''[[Melaskóli|Melaskóla]]''' árið [[1946]] voru 850 nemendur þar ? *... '''[[Aríus]]''' var [[Kristni|kristinn]] kennimaður á [[3. öldin|3.]] og [[4. öldin|4. öld]] sem boðaði að [[Jesús]] væri undir [[Guð]] settur þar sem hann ætti sér upphaf í tíma og hafnaði þannig [[heilög þrenning|þrenningarkenningunni]]? *... nafn sveitarfélagsins '''[[Aasiaat]]''' á Vestur-[[Grænland]]i merkir „köngulóaborgin“ á [[grænlenska|grænlensku]]? *... '''[[New Super Mario Bros.]]''' er fyrsti [[Mario]]-leikurinn þar sem sjónarhornið er frá hlið, frá því [[Super Mario Land 2]] kom út [[1992]]? *... '''[[Demosþenes]]''' var [[Grikkland hið forna|forngrískur]] stjórnmálamaður sem lék stórt hlutverk í uppreisn [[Aþena|Aþenu]] gegn [[Alexander mikli|Alexander mikla]]? *... '''[[vísitala um þróun lífsgæða]]''' (''sjá mynd'') er [[vísitala]] sem mælir [[lífslíkur]], [[læsi]], [[menntun]] og [[lífsgæði]]? *... '''[[skólaspeki]]''' var hefð í [[miðaldaheimspeki]] sem reyndi að sætta [[heimspeki fornaldar]] og kristna [[guðfræði]]? *... fyrsta úthlutun úr '''[[Kvikmyndasjóður Íslands|kvikmyndasjóði]]''' var samtals þrjátíu milljón (gamlar) [[íslensk króna|krónur]]? *... '''[[fornloftslagsfræði]]''' er vísindagrein sem fæst við [[loftslagsbreytingar]] sem hafa átt sér stað í [[Jarðsaga|jarðsögunni]]? *... [[gras|grös]]um er skipt í '''[[puntgrös]]''', '''[[axpuntgrös]]''' og '''[[axgrös]]''' eftir því hvernig [[smáax|smáöx]]in sitja á stráinu? *... '''[[Þjóðleikhúsið]]''' sýnir á fimm [[leiksvið]]um sem geta tekið samtals um þúsund manns í sæti? *... eitt fyrsta málið sem '''[[Neytendasamtökin]]''' beittu sér í var ''Hvide-vask''-málið svokallaða? *... '''[[Diomedes Grammaticus]]''' var [[Rómaveldi|rómverskur]] málfræðingur sem samdi ritið ''Ars grammatica''? *... '''[[XHTML]]''' er [[ívafsmál]] sem svipar mjög til [[HTML]] en notast við strangari ritunarreglur? *... '''[[Pliníus eldri]]''' var [[Rómaveldi|rómverskur]] fræðimaður, rithöfundur og sjóliðsforingi? *... meginuppistaða '''[[Kotasæla|kotasælu]]''' er [[ystingur]] sem búið er að pressa mestu [[mysa|mysuna]] úr? [[Mynd:Plinyelder.jpg|70px|right|]] *... '''[[Landhelgisgæsla Íslands]]''' var upphaflega stofnuð [[1. júlí]] [[1926]], tveimur vikum eftir að [[gufuskip]]ið ''Óðinn'' kom til landsins. *... einn '''[[hestburður]]''' er um hundrað [[kílógramm|kílógrömm]] af þurru [[hey]]i? *... '''''[[sic]]''''' er [[latína]] og er notað til að sýna að röng eða óvenjuleg stafsetning hafi ekki verið innsláttarvilla? *... '''[[Broddmjólk]]''' inniheldur mörg lífsnauðsynleg efni sem hjálpa afkvæmum [[spendýr]]a að þroskast og verjast sjúkdómum? *... '''[[Deildartunguhver]]''' í [[Reykholt (Borgarfirði)|Reykholtsdal]] (''sjá mynd'') er vatnsmesti [[hver]] [[Evrópa|Evrópu]]? [[Mynd:Islande source Deildartunguhver.jpg|70px|right|]] *... '''[[frymisgrind]]''' er styrktargrind í frumunum sem er gerð úr holum strengjum? *... elstu lýsinguna á '''[[Hveravellir|Hveravöllum]]''' er að finna í ferðabók [[Eggert Ólafsson|Eggerts Ólafssonar]] og [[Bjarni Pálsson|Bjarna Pálssonar]] frá [[1752]]? *... kenningin um '''[[Eyrarsundslásinn]]''' er ein skýring á auknum mætti [[Dansk-norska ríkið|Dana]] í baráttu við [[England|Englendinga]] um yfirráð yfir Norður-[[Atlantshaf]]i á [[15. öldin|15. öld]]? *... eitrunaráhrif '''[[kolmónoxíð]]s''' stafa af því að það binst [[hemóglóbín]]i í [[blóð]]i og kemur þannig í veg fyrir upptöku [[súrefni]]s? *... mikilvægasta veiðisvæði hinna fornu [[Grænlendingur|Grænlendinga]] hét '''[[Norðurseta]]''' og var á miðri vesturströnd [[Grænland]]s? *... ''' [[Wii stöðvar]]nar '''eru aðalvalmynd leikjatölvunnar [[Wii]] frá [[Nintendo]]. Þar er hægt að velja að spila [[tölvuleikur|tölvuleiki]], [[Virtual Console (Wii)|Virtual Console]] leiki eða að kíkja á veðrið eða fréttirnar. [[Mynd:Nordurseta1.png|75px|right|]] *... '''[[Gagnstrokka hreyfill]]''' er tegund [[sprengihreyfill|sprengihreyfils]] sem er mikið notuð í [[einkaflugvél]]um? *... [[geislaálag]] er mælt í '''[[sívert]]um'''? *... '''[[Þorleifur Halldórsson]]''' skrifaði ''Mendacii encomium'' eða ''[[Lof lyginnar]]'' á siglingu frá [[Ísland]]i til [[Kaupmannahöfn|Kaupmannahafnar]]? *... eina bókin sem [[Ludwig Wittgenstein]] gaf út á ævinni var ''[[Rökfræðileg ritgerð um heimspeki]]''? *...að '''''[[Evrópskur sumartími]]''''' er [[sumartími]] sem fylgt er í öllum [[Evrópa|Evrópu]]löndum nema [[Ísland|Íslandi]]?<br> *...að '''''[[Columbia (ofurtölva)|Columbia]]''''' er ein öflugasta [[ofurtölva]] í heimi?<br> *...að '''''[[Barnagæla|Barnagælur]]''''' eins og „[[Kalli litli könguló]]“ eru hefðbundin [[ljóð]] eða [[vísa|vísur]] kenndar og [[söngur|sungnar]] meðal ungra [[barn]]a?<br> *...að '''''[[Kaldbaksvík]]''''' á [[Strandir|Ströndum]] er stærsta [[vík]]in á milli [[Bjarnarfjörður|Bjarnarfjarðar]] og [[Veiðileysufjörður (Ströndum)|Veiðileysufjarðar]]?<br> <!--[[Mynd:Gagntæk vörpun.png|left|65px|]]--> *...að '''''[[Teljanlegt mengi]]''''' er í [[stærðfræði]] [[mengi]] sem er annað hvort teljanlegt eða teljanlega óendanlegt?<br> *...að '''''[[Náttúrulegar tölur|Náttúrulegar]]''''', '''''[[heiltölur|heilar]]''''', '''''[[ræðar tölur|ræðar]]''''', '''''[[óræðar tölur|óræðar]]''''', '''''[[rauntölur|raun-]]''''' og '''''[[tvinntölur]]''''' eru allt [[talnamengi]] í [[stærðfræði]]?<br> *...að '''''[[Algildi]]''''' er í [[stærðfræði]] [[fjarlægð]] [[tala|tölu]] frá tölunni [[núll]] á [[rauntalnalína|rauntölulínunni]]?<br> *...að '''''[[Paka-paka]]''''' olli því að 700 börn lentu á sjúkrahúsi árið [[1997]]?<br> *...að '''''[[Hiragana]]''''' er annað tveggja [[atkvæðatáknróf]]a í [[japanska|japönsku]]?<br> *...að '''''[[Matarprjónar]]''''' voru [[þróun|þróaðir]] fyrir um það bil 3000-5000 [[ár]]um í Kína? [[Mynd:Feb1712.jpg|100px|right|Sænska almannakið árið 1712]] *...að [[dagur]]inn '''''[[30. febrúar]]''''' hefur komið upp þrisvar í [[mannkynssagan|sögunni]] eða einu sinni í [[sænska tímatalið|sænska tímatalinu]] og tvisvar í [[byltingartímatal Sovétríkjanna|byltingartímatali]] [[Sovétríkin|Sovétríkjanna]]?<br> *...að líkurnar á því fá fimm aðaltölur réttar í '''[[Getraun#Lottó - Íslensk Getspá|Lottói Íslenskrar Getspár]]''' eru einn á móti 501.942?<br> [[Flokkur:Forsíðusnið]] All content in the above text box is licensed under the Creative Commons Attribution-ShareAlike license Version 4 and was originally sourced from https://is.wikipedia.org/w/index.php?diff=prev&oldid=1512033.
![]() ![]() This site is not affiliated with or endorsed in any way by the Wikimedia Foundation or any of its affiliates. In fact, we fucking despise them.
|