Revision 1283703 of "Íslam" on iswiki

{{Hlutleysi|sjá [[Spjall:Íslam|spjallsíðu]]. Vinsamlegast ekki taka út merkið fyrr en deila er til lykta leidd}}

[[Mynd:Loya7.jpg|thumb|[[Moska]] í [[Afganistan]].]]
<onlyinclude>
'''Íslam''' ([[arabíska]]: الإسلام ''al-islām'' {{framburður|Ar-al islam.ogg}}), einnig nefnt '''Múhameðstrú''', er [[eingyðistrú]] og er [[guð]] þeirra nefndur [[Allah]] á [[arabíska|arabísku]] og rekur uppruna sinn til arabíska spámannsins og stríðsherrans Múhameðs sem var uppi á 6. og 7. öld eftir Krist. Fylgjendur íslams kallast ''múslimar''. Íslam er af [[Abrahamísk trúarbrögð|abrahamískum stofni]] og eru talin næst fjölmennustu [[trúarbrögð]] [[Jörðin|heims]] á eftir [[kristni]]. Í samanburði við önnur trúarbrögð sækir múhameðstrú einna mest til [[Gyðingdómur|gyðingsdóms]] þar sem lifað er eftir reglum svo sem hvað varðar matarvenjur, föstu á ákveðnum tímum, umskurn á kynfærum, reglulegar bænir og fleira. Margir trúarsiðir í íslam eru upprunnir úr heiðnum trúarbrögðum araba frá því fyrir tíma Múhameðs. Íslam er ekki einungis trúarbrögð heldur er þeim oft lýst sem alsherjar lífsreglum sem eru alhliða og taka til allra þátta lífs múslima, bæði félagslegra, efnahagslegra, siðferðislegra og andlegra.<ref>''Islam í stuttu máli'', Grein á vefsíðu Félags íslenskra múslima, http://www.islam.is/index.php?option=com_content&view=article&id=6&Itemid=3&lang=is. Skoðað 3.10.2009.</ref> Stjórnskipan, réttarfar, löggjöf, refsingar og almennar lífsvenjur múslima taka mið af trúartextum íslams og lífi spámannsins Múhameðs.

Íslam er stundum nefnd múhameðstrú á [[íslenska|íslensku]]. Samsvarandi heiti voru notuð í flestum Evrópumálum en eru nú óðum á undanhaldi. Ástæðan er sú að [[múslimi|múslimar]] (fylgjendur íslam) álíta [[hugtak]]ið „múhameðstrú“  vera rangt og í raun móðgun við trúaða múslima þar sem þeir trúa ekki á [[Múhameð]] heldur álíta að [[Guð]] hafi valið hann sem spámann og sendiboða.<ref>[http://books.google.co.in/books?id=fUw7Eks1UooC&pg=PA135&lpg=PA135&dq=Mohammedanism+misnomer&source=bl&ots=C7QVuTLE00&sig=7YNCgxBkZ3eWj7KYsJZ7WwhVIYI&hl=en&ei=AAIlSqXHFYq7mQeg4-H6CA&sa=X&oi=book_result&ct=result&resnum=2 Mohammedanism a Misnomer], eftir R. Bosworth Smith, Paul Tice</ref><ref>[http://encyclopedia.farlex.com/Mohammedanism Definition of Mohammedanism], Farlex Encyclopedia</ref><ref>[http://www.islamicbulletin.org/intro.htm#a6 What does Islam mean?], Islamic Bulletin</ref> Hugtakið „múhameðstrú“ hefur skapast sem samsvörun við hugtakið „kristin trú“.{{heimild vantar}}

Á Vesturlöndum hefur mikil gagnrýni á íslam hefur komið fram á síðustu árum. Gagnrýnendur íslams segja það eiga lítið erindi við nútímann, vestrænt lýðræði, jafnrétti kynjanna, kristið siðferði og fleira. 

Íslam hefur borist til vesturlanda og Íslands með innflytjendum og flóttamönnum frá löndum múslima, sem oft flýja fátækt, hernað og kúgun í eigin löndum. Allmargir múslimar á vesturlöndum hafa átt í erfiðleikum með að samlagast í þessum nýju þjóðfélögum sínum og ekki er óalgengt á síðustu árum að trúarsiðir og lífsvenjur hafi orðið íhaldsamari en í heimalöndunum.{{heimild vantar}}

== Múslimar ==
Múslimar ([[Arabíska]]: مسلم) eru fylgjendur íslams, en orðið þýðir bókstaflega sá sem "sýnir undirgefni" eða "hlýðir" Guði. Það er algengur misskilningur að Múslimar kallist líka Múhameðstrúarmenn, en þessi tvö heiti hafa ekki sömu merkingu fyrir þá sem eru Múslimar. Þeir fylgja víst leiðsögn Múhammed Spámanns en þeir trúa á Guð og tilbiðja Guð, Skaparann Alheimsins. Múslimi trúir að Guð sé Einn (án milliliða) og þess vegna aðeins Guð (Allah á Arabísku) verðskuldar tilbeiðslu. Hann trúir líka að Guð hafi sent öllum þjóðum jarðar þetta skilaboð gegnum spámenn (frá Adam til Muhammed) og að í Kóraninum er lokaopinberunin Guðs til manna. Múslimi lifir í undirgefni við vilja Guðs því hann trúir að með þessum hætti öðlist hann innri frið og hamingju í þessu lífi og ekki síst eftir dauða, í Himnaríki. 

=== Orðsifjar ===
Á [[Arabíska|arabísku]] kemur orðið "múslimi" úr þriggja stafa rótinni S-L-M, sem hefur merkinguna "friðsamleg undirgefni; að gefa sig; að hlýða; friður". Önnur arabísk orð sem eru dregin af S-L-M rótinni: ''Islām'' sem þýðir  "undirgefni/hlýðni," það er að segja undirgefni við Guð. 
Múslimar greinast í mörg [[trúfélög múslima|trúfélög]], langstærst þeirra eru [[sjía]]-múslimar og [[súnní]]-múslimar. Bænahús múslima heita [[Moska|moskur]]. Talið er að fjöldi múslima í heiminum í dag sé 1,57 milljarðar, þar af búa 38 milljónir múslima í Evrópu og 2,4 milljónir í Bandaríkjunum.<ref>''A Report on the Size and Distribution of the World's Muslim Population'', The Pew Forum on Religion and Public Life, október 2009, http://pewforum.org/docs/?DocID=451, skoðað 17.10.2009</ref> Múslimar á Íslandi eru um 400 samkvæmt [[Hagstofa Íslands|Hagstofu Íslands]].<ref>Hagstofa Íslands, http://www.hagstofa.is, skoðað 19.10.2009</ref></onlyinclude>

== Orðsifjar ==
Á arabísku kemur orðið ''Islām'' úr þriggja stafa rótinni ''S-L-M'', sem hefur merkinguna „undirgefni; að gefa sig; að hlýða“.<ref>[http://www.usc.edu/dept/MSA/notislam/misconceptions.html#HEADING1 USC-MSA Compendium of Muslim Texts]</ref> Islām þýðir bókstaflega „undirgefni/hlýðni,“ það er að segja undirgefni við [[Allah]], sem er nafn guðs í íslam.

Önnur arabísk orð sem eru dregin af S-L-M rótinni:

* Salām, þýðir „friður“, og er algengt að heilsast með þessu ávarpi 
* Muslim, fylgjandi íslam, þýðir sá sem „sýnir undirgefni“ eða „hlýðir“ Guði.

== Trú ==
Múslímar trúa því að Guð (á arabísku ''[[Allah]]''; einnig á [[arameísku]] ''Alaha'') hafi opinberað boðskap sinn til manna fyrir [[Múhameð]] [[spámaður|spámanni]] sem uppi var í [[Arabía|Arabíu]] [[570]]-[[632]] (samkvæmt [[Gregoríanskt tímatal|gregoríanska tímatalinu]]). 
Þeir trúa því einnig að aðrir [[spámaður|spámenn]] Guðs, þar á meðal [[Adam og Eva|Adam]], [[Nói]], [[Abraham]], [[Móses]] og [[Jesús]] (sem þeir kalla [[Isa]]) hafi fengið opinberanir frá honum. Múslimar trúa því að Múhameð sé síðasti og mesti spámaðurinn eða „innsiglið“. Opinberanir hans munu endast fram að [[Dómsdagur|Dómsdegi]].  

[[Mynd:Mohammed kaaba 1315.jpg|thumb|Elsta mynd sem til er af Múhameð]]

Aðalrit múslíma er ''[[Kóraninn]]'' en þeir trúa því að hann hafi verið skrifaður af Múhameð beint eftir [[Gabríel (engill)|Gabríel]] [[Erkiengill|erkiengli]] samkvæmt boði Guðs. ''Kóraninn'' er samkvæmt múslímum óbrengluð orð Guðs (ólíkt [[Biblían|Biblíu]] [[Kristni|kristinna]] manna, sem á að vera texti venjulegra manna innblásinn af Guði) og var opinberaður á arabísku. Mikið er lagt upp úr því í samfélögum múslima að fólk geti lesið (og helst talað) arabísku og þar með lesið ''Kóraninn'' á frummáli. Múslimar trúa því að hluti af [[Guðspjall|guðspjöllunum]], [[Torah]] og spádómabækur Gyðinga hafi, þrátt fyrir heilagan uppruna þeirra, verið vantúlkaðar og spillt af manna völdum. Frá þessu sjónarhorni er Kóraninn leiðrétting á á heilögum ritum Gyðinga og kristinna manna og lokaopinberun.

Múslímar álíta að íslam sé í aðalatriðum sú sama trú sem aðrir spámenn og sendiboðar Guðs hafa opinberað mönnum allt frá Adam og Abraham. Kóraninn kallar Gyðinga og kristna (og það hugtak er einnig á stundum notað um aðra trúarflokka) „fólk bókarinnar“.

Grundvallartrúarjátningu íslam er að finna í ''[[šahādatān]]'' („tvær erfðaskrár“, á arabísku: لا  إله إلا الله ومحمد رسول الله ): ''lā ilāhā illā-llāhu; muhammadur-rasūlu-llāhi''— „Það er enginn guð nema Guð (Allāh); Múhameð er spámaður Guðs (Allah).“ Til að gerast múslimi verður að hafa þessa setningu yfir (á arabísku) og trúa henni í vitna viðurvist. Það er ekki hægt að neyða neinn til að gerast múslimi, einungis sá sem virkilega óskar þess getur orðið það.

Fyrir utan Kóraninn eru frásagnirnar um gerðir og ummæli Múhameðs, sem nefndar eru [[hadith]], mikilvægustu undirstoðir trúarskoðana og réttarkerfis múslima.

== Fimm stoðir íslam ==
Íslam hefur fimm stoðir, fimm grundvallaratriði trúarinnar. Staða þeirra er umdeild milli gerða íslam, en í öllum eru þær mikilvægar. Stoðirnar fimm eru:

* ''Shahādah (sjahada, trúarjátningin)'' – Yfirlýsing um að það sé enginn guð annar en Allah og Múhameð sé sendiboði hans.
* ''Salat (salat, [[bæn]]in)'' – Það að biðja skuli fimm sinnum á dag og krjúpa í átt að [[Kaaba]] hofinu í [[Mekka]]
* ''Sawm (saúm, [[fasta]]n)'' – Að sleppa því að borða, drekka og stunda kynlíf frá dögun til sólseturs í tunglmánuðinum [[Ramadan]].
* ''Zakāt (sakat, [[ölmusa]])'' – Ætlast er til þess að allir múslimar greiði fasta [[Prósenta|prósentu]] sem svo er útdeilt til fátækra.
* ''Hajj ([[hadsjí]] (pílagrímsferð)'' – Ætlast er til þess að allir múslimar, svo lengi sem fjárhagur og heilsa leyfi, fari til [[Mekka]] í það minnsta einu sinni um ævina.

Sumir halda því fram að sjötta stoðin sé óformlega til, en umdeilt er hver hún ætti þá að vera. Meðal annars er haldið fram að hún sé klausturmeðferð og munkadómur eða [[heilagt stríð]].{{heimild vantar}} Þeir sem ekki eru sammála því að hún sé til telja margir að tilvist sjöttu stoðarinnar sé [[villutrú]].

== Guð ==
[[Mynd:Allah.svg|thumb|Arabíska orðið ''Allāh'', eða Guð, skrifað með skrautskript.]]
Grundvallarhugmynd íslam er að [[Guð]] er einn og óskiptanlegur (á arabísku ''tawhid''). Þessi eingyðistrú er bókstafleg og algjör. Guð er skapari heims, á jörðina og segir um hvaða lög skuli gilda (á arabísku [[sharía]]). 

Guð er skilgreindur í Kóraninum, [[Súra|súru]] 112 á þennan hátt:
:''Segðu „Hann er Guð, einn og sá eini. Allāh, hinn Eilífi, Allsherjar sjálfvaldur meistari. Hann getur engan og er ekki getinn, og enginn er líkur Honum.“ ([http://www.islam101.com/quran/yusufAli/QURAN/112.htm Yusuf A. Ali]).

Orðið ''Allāh'' er einnig notað um Guð af arabískumælandi Gyðingum og kristnum. Nafnið Allāh er einungis hægt að nota í eintölu og það hefur ekkert kyn. Múslímar hafna algjörlega hinni kristnu kenningu um „[[heilög þrenning|heilaga þrenningu]]“ (samfélag föður og sonar og heilags anda í einum guðdómi), þeir álíta hana jaðra við [[fjölgyðistrú]]. Í súru 4:171 segir:
 
:''„Ó Fólk Bókarinnar, yfirstígið ekki takmörk trúar ykkar og segið ekki annað um GUÐ en sannleikan. Messías, Jesús, sonur Maríu var einungis spámaður GUÐS, og orðsending Hans sem Hann sendi Maríu, opinberun frá Honum. Þess vegna skulið þið trúa á GUÐ og spámenn Hans. Þér skulið ekki segja "Þrenning". Þér skuluð ekki gera það fyrir ykkar eigið besta. GUÐ er einn guð. Hafið Hann í hávegum, Hann er allt of hátignaður til að eignast son.“''

Engar múslímskar myndir eru eða geta verið til af Guði þar sem þær mundu leiða til [[hjáguðadýrkun]]ar, eðli Guðs gerir það einnig útilokað að skapa [[Tvívídd|tví]]- eða [[þrívídd|þrívíða]] mynd af honum. Allar súrurnar, nema ein, hefjast á „Í nafni Guðs, hins náðuga, hins miskunnsama“ sem lýsir eðli hans ásamt þeim 99 nöfnum sem hann er nefndur í ''Kóraninum''.

== Saga ==
[[Mynd:Age of Caliphs.png|thumb|350 px|Yfirráðasvæði kalífatsins árið 750]]
Árið [[610]] fékk [[Múhameð]] (samkvæmt múslimum) kall sitt sem spámaður í helli nokkrum stutt frá Mekka. Honum á þá að hafa verið falið það verkefni að opinbera þann texta sem í dag er kallaður ''Kóraninn'' og boða stranga eingyðistrú þar sem kjarninn var koma dómsdags þar sem fólk yrði reist úr dauðanum, ranglátir myndu brenna í vítislogum Allah en réttlátir hefðu vísa vist í paradís hans. 

Mikið er til af heimildum um líf Múhameðs og fyrstu ár íslams, færðar í rit einni til tveimur öldum eftir dauða hans. Samtímaheimildir eru helst vers kóranins, en mikið af þeim höfðu verið rituð niður um og eftir dauða Múhameðs. Helstu heimildir, og þær virtustu meðal múslima, eru Kóraninn (sem var fyrst skráð eftir dauða Múhameðs) sjálfur, Hadith textarnir (eða hefðirnar) og Sira (fyrsta ritið um ævi Múhameðs). Ef þessi rit eru lesin í samhengi má sjá glögglega flesta meginatburði á upphafstíma íslams og hvernig og hvers vegna vitranir Múhameðs koma fram. Þetta er mjög frábrugðið sagnfræði kristinna manna, búddista og annarra trúarhópa þar sem lítið er til af sagnfræðilegum heimildum öðrum en trúartextum.
Söguhefðir shía og súnnímúslima um upphafstíma íslam er ýmsum atriðum allólíkar og grundvöllur klofnings safnaðanna.<ref>Madelung, Wilferd (1997). The Succession to Muhammad: A Study of the Early Caliphate. Cambridge University Press. ISBN 0-521-64696-0.</ref>

Múhameð fékk fáa fylgismenn í upphafi, og aðallega úr lægri stéttum samfélagsins, en Múhameð sjálfur tilheyrði yfirstéttinni í Mekka, sem meðal annars stjórnaði hofinu Kaba. Árið [[622]] voru Múhameð og fylgismenn hans neyddir til að flýja til borgarinnar [[Medína]]. Í kjölfar þess taka Múhameð og fylgismenn hans upp vopnaða baráttu og herja á yfirstéttina í Mekka og samfélög gyðinga í og kringum Medína. Meðal annars með ránum og mannvígum tókst Múhameð og fylgismönnum hans að beygja undir sig fleiri og fleiri ættbálka á Arabíuskaganum. 

Þegar Múhameð lést árið [[632]] náði veldi hans og þar með veldi íslam yfir bróðurpart Arabíu. Þegar hann lést tók vinur hans [[Abu Bakr]] við völdum en næstu tveir [[Kalífi|kalífar]] (leiðtogar hins íslamska ríkis) voru skyldmenni Múhameðs. Á þessum tíma stækkaði yfirráðasvæði íslamska ríkisins, sem nefnt hefur verið [[Kalífatið]], mjög mikið og varð að mjög stóru heimsveldi. Fjórði kalífinn var hins vegar tengdasonur Múhameðs, [[‘Āli ibn Abī Ṭālib]], og deilan um réttmæti valda hans eru undirrótin að skiptingu múslima í [[sjía]] og [[súnní]]. Sjía-múslimar trúa því að þeir sem á undan honum voru hafi verið ólögmætir vegna þess að Múhameð hafi nefnt hann sem eftirmann sinn á dánarbeði sínu, en súnníar eru ósammála þessu. Kalífatið náði hámarki sem eitt ríki um 750. Það klofnaði í fleiri ríki í raun, en hinir nýorðu múslimar [[Tyrkland|Tyrkir]] náðu völdum yfir nokkurn veginn öllu landsvæðinu á elleftu öld með [[Ottómanska veldið|Ottómanska veldinu]]. Fjölmennasta nútímaríki þar sem meirihluti íbúa eru múslimar er [[Indónesía]]. 

[[Mynd:Islam by country.png|thumb|350 px|Kort sem sýnir áætlað hlutfall múslima eftir löndum. Rauði liturinn táknar hér sjía og sá græni súnní, drekkt litar sýnir hlutfall]]

Gagnrýni á íslam hefur aukist á [[vesturlönd]]um og um allan heim á undanförnum árum í kjölfar þess að [[hryðjuverk]]ahópar múslima fremja hryðjuverk í nafni íslams og [[Allah]], og telja sig gera það samkvæmt boði Kóranins. Enn fremur hefur verið gefin út fjöldi bóka og rita á [[vesturlönd]]um sem fjalla um íslam og Múhameð og þá sér í lagi hið ofbeldisfulla eðli íslam og hina blóðugu baráttu sem liggur að baki tilurðar þess.{{heimild vantar}}

== Tilvísanir ==
{{reflist}} 

== Tenglar ==
* [http://www.islam.is Vefsíða félags múslima á Íslandi]
* [http://www.islam-qa.com/en Islam Question and Answer]
* [http://www.islamonline.net Islam Online.net]
* [http://www.islamicnetwork.com Islamic Network]
* [http://www.islam.com/ www.islam.com]
* [http://www.islamreligion.com The Religion of Islam]
* [http://www.understanding-islam.com/ Understanding Islam]
* [http://www.al-islam.com/eng/ Kingdom of Saudi Arabia Ministry of Islamic Affairs, Endowments, Da‘wah and Guidance]
* [http://www.islamfortoday.com/ Islam for today]
{{Tengill ÚG|en}}
{{Tengill ÚG|he}}
{{Tengill ÚG|id}}
{{Tengill ÚG|pt}}
{{Tengill ÚG|tr}}

[[Flokkur:Íslam| ]]

{{Tengill GG|es}}

[[ace:Éseulam]]
[[af:Islam]]
[[als:Islam]]
[[am:እስልምና]]
[[an:Islam]]
[[ang:Alladōm]]
[[ar:إسلام]]
[[arc:ܐܣܠܐܡ]]
[[arz:الاسلام]]
[[as:ইছলাম]]
[[ast:Islam]]
[[av:Ислам]]
[[az:İslam]]
[[ba:Ислам]]
[[bar:Islam]]
[[bat-smg:Ėslams]]
[[bcl:Islam]]
[[be:Іслам]]
[[be-x-old:Іслам]]
[[bg:Ислям]]
[[bi:Islam]]
[[bjn:Islam]]
[[bm:Silameya]]
[[bn:ইসলাম]]
[[bo:དབྱི་སི་ལམ་ཆོས་ལུགས།]]
[[br:Islam]]
[[bs:Islam]]
[[bug:Islam]]
[[ca:Islam]]
[[ceb:Islam]]
[[ckb:ئیسلام]]
[[co:Islamu]]
[[crh:İslâm]]
[[cs:Islám]]
[[cv:Ислам]]
[[cy:Islam]]
[[da:Islam]]
[[de:Islam]]
[[diq:İslam]]
[[dsb:Islam]]
[[dv:އިސްލާމް]]
[[el:Ισλάμ]]
[[en:Islam]]
[[eo:Islamo]]
[[es:Islam]]
[[et:Islam]]
[[eu:Islam]]
[[ext:Islam]]
[[fa:اسلام]]
[[fi:Islam]]
[[fiu-vro:Muhamediusk]]
[[fo:Islam]]
[[fr:Islam]]
[[frp:Islame]]
[[fur:Islam]]
[[fy:Islam]]
[[ga:An tIoslam]]
[[gd:Islam]]
[[gl:Islam]]
[[gn:Islã]]
[[gu:ઇસ્લામ]]
[[ha:Musulunci]]
[[hak:Yî-sṳ̂-làn-kau]]
[[haw:Hoʻomana Mohameka]]
[[he:אסלאם]]
[[hi:इस्लाम]]
[[hif:Islam]]
[[hr:Islam]]
[[hsb:Islam]]
[[ht:Islamis]]
[[hu:Iszlám]]
[[hy:Իսլամ]]
[[ia:Islam]]
[[id:Islam]]
[[ie:Islam]]
[[ig:Áláküba]]
[[ilo:Islam]]
[[io:Islamismo]]
[[it:Islam]]
[[ja:イスラム教]]
[[jbo:musyjda]]
[[jv:Islam]]
[[ka:ისლამი]]
[[kab:Islam]]
[[kg:Kisilamu]]
[[kk:Ислам]]
[[kl:Islam]]
[[km:សាសនាឥស្លាម]]
[[kn:ಇಸ್ಲಾಂ ಧರ್ಮ]]
[[ko:이슬람교]]
[[krc:Ислам]]
[[ku:Îslam]]
[[kw:Islam]]
[[ky:Ислам]]
[[la:Religio Islamica]]
[[lad:Islam]]
[[lb:Islam]]
[[lbe:Ислам]]
[[lez:Ислам]]
[[li:Islam]]
[[lij:Islamiximo]]
[[lmo:Islam]]
[[ln:Islamu]]
[[lt:Islamas]]
[[lv:Islāms]]
[[map-bms:Islam]]
[[mk:Ислам]]
[[ml:ഇസ്‌ലാം]]
[[mn:Ислам]]
[[mr:इस्लाम धर्म]]
[[ms:Islam]]
[[mt:Iżlam]]
[[mwl:Eislan]]
[[my:အစ္စလာမ်ဘာသာ]]
[[mzn:ایسلام]]
[[nah:Islam]]
[[nap:Islam]]
[[nds:Islam]]
[[nds-nl:Islam]]
[[ne:इस्लाम धर्म]]
[[new:इस्लाम]]
[[nl:Islam]]
[[nn:Islam]]
[[no:Islam]]
[[nov:Islam]]
[[nrm:Islam]]
[[oc:Islam]]
[[os:Пысылмон дин]]
[[pap:Islam]]
[[pdc:Islaam]]
[[pih:Islem]]
[[pl:Islam]]
[[pnb:اسلام]]
[[ps:اسلام]]
[[pt:Islão]]
[[qu:Islam]]
[[rm:Islam]]
[[ro:Islam]]
[[roa-rup:Islam]]
[[ru:Ислам]]
[[rue:Іслам]]
[[sa:इस्लाममतम्]]
[[sah:Ислам]]
[[sc:Islam]]
[[scn:Islam]]
[[sco:Islam]]
[[sd:اسلام]]
[[se:Islám]]
[[sh:Islam]]
[[si:ඉස්ලාම්]]
[[simple:Islam]]
[[sk:Islam]]
[[sl:Islam]]
[[sn:Islam]]
[[so:Islaam]]
[[sq:Feja Islame]]
[[sr:Ислам]]
[[su:Islam]]
[[sv:Islam]]
[[sw:Uislamu]]
[[szl:Islam]]
[[ta:இசுலாம்]]
[[te:ఇస్లాం మతం]]
[[tg:Ислом]]
[[th:ศาสนาอิสลาม]]
[[tk:Yslam]]
[[tl:Islam]]
[[tpi:Islam]]
[[tr:İslam]]
[[tt:Íslam]]
[[ug:ئىسلام دىنى]]
[[uk:Іслам]]
[[ur:اسلام]]
[[uz:Islom]]
[[vec:Islam]]
[[vep:Islam]]
[[vi:Hồi giáo]]
[[vls:Islam]]
[[wa:Islam]]
[[war:Islam]]
[[wo:Lislaam]]
[[wuu:回教]]
[[xal:Лал шаҗн]]
[[xmf:ისლამი]]
[[yi:איסלאם]]
[[yo:Ìmàle]]
[[zea:Islam]]
[[zh:伊斯兰教]]
[[zh-classical:回教]]
[[zh-min-nan:I-su-lân-kàu]]
[[zh-yue:伊斯蘭教]]