Revision 1344321 of "Kambódía" on iswiki{{Land |
nafn_á_frummáli = [[Mynd:KingdomofCambodia.svg|180px]]<br />Preăh Réachéanachâkr Kâmpŭchea |
nafn_í_eignarfalli = Kambódíu |
fáni = Flag of Cambodia.svg |
skjaldarmerki = Royal Arms of Cambodia.svg|
staðsetningarkort = LocationCambodia.png |
kjörorð = [[Mynd:CambodiaMotto.svg|180px]]<br />(Þjóð, trú, konungur) |
þjóðsöngur = [[Nokoreach]] |
tungumál = [[kambódíska]] |
höfuðborg = [[Phnom Penh]] |
stjórnarfar = [[þingbundin konungsstjórn]] |
titill_leiðtoga = [[konungur]] <br /> [[forsætisráðherra]] |
nöfn_leiðtoga = [[Norodom Sihamoni]] <br /> [[Hun Sen]] |
stærðarsæti = 87 |
flatarmál_magn = 1 E11 m²|
flatarmál = 181.040 |
hlutfall_vatns = 2,5 |
fólksfjöldi = 13.388.910 |
mannfjöldaár = 2008 |
mannfjöldasæti = 65 |
íbúar_á_ferkílómetra = 74 |
VLF_ár = 2003 |
VLF = 29.344 |
VLF_sæti = 86 |
VLF_á_mann = 2.189 |
VLF_á_mann_sæti = 122 |
staða_ríkis = [[Sjálfstæði]] |
atburðir = - Yfirlýst<br />- Viðurkennt |
dagsetningar = frá [[Frakkland]]i<br />[[1949]]<br />[[1953]] |
gjaldmiðill = [[ríal]] (KHR) |
tímabelti = [[UTC]]+7 |
tld = kh |
símakóði = 855 |
}}
'''Kambódía''' er land í [[Suðaustur-Asía|Suðaustur-Asíu]] með landamæri að [[Taíland]]i í vestri, [[Laos]] í norðri og [[Víetnam]] í austri. Í suðri á landið strandlengju að [[Taílandsflói|Taílandsflóa]].
Opinbert nafn landsins á [[khmer]] er [[Mynd:KingdomofCambodia.svg|150px]], umskrifað með latneskum bókstöfum: ''Preăh Réachéanachâkr Kâmpŭchea'', þ.e. ''Konungsríkið Kambódía''. Í daglegu tali nefna landsmenn landið „Kampútsea“. Á vesturlöndum er hins vegar nafnið „Kampútsea - Kampuchea“ tengt stjórnatíma [[Rauðu khmerarnir|Rauðu khmeranna]] 1975–79.
Íbúafjöldi er rúmlega 13 miljónir.<ref>[http://www.stat.go.jp/english/info/meetings/cambodia/pdf/pre_rep1.pdf General Population Census of Cambodia 2008 - Provisional population totals, National Institute of Statistics, Ministry of Planning, released 3rd September, 2008]</ref> Höfuðborg og jafnframt stærsta borg landsins er [[Phnom Penh]].
Flestir íbúar Kambódíu eru [[Theravada|theravada búddhistar]] en þar búa auk þess allmargir [[múslimar]] sem nefndir eru [[Cham]], [[Kínverjar]], [[Víetnamar]] og aðrir minnihlutahópar.
Landslag og atvinnulíf einkennist mjög af tveimur miklum vatnakerfum, [[Mekong]]-fljótinu og [[Tonle Sap]]-fljótinu. Fyrir utan að hrísgrjónaræktunin er mjög háð þessum vatnakerfum eru fiskveiðar í þeim ein aðalundirstaða í mataræði almennings.
Fyrir utan landbúnað og fiskiveiðar eru helstu atvinnugreinar í Kambódíu saumur á fatnaði til útflutnings, [[ferðaþjónusta]] og byggingarstarfsemi.
== Nafn ==
[[Íslenska]] nafnið ''Kambódía'' er komið af franska nafninu ''Cambodge'' sem er afbökun á nafni innlendra ''Kampútsea'' (stafað á ensku og frönsku og fleiri málum ''Kampuchea''). Það þýðir afkomendur Kambu en það er samkvæmt fornri sköpunarsögu Khmera sjálfur forfaðir þeirra. Nafnið Kampútsea hefur verið notað í það minnsta frá 12. öld og er enn það nafn sem íbúarnir nota.
Á tuttugustu öld var oft skipt um opinbert nafn allt eftir stjórnmálaástandi hvers tíma. Meðan landið var undir franskri stjórn var það einungis hérað í Frönsku Indókína, ''protectorat français sur le Cambodge''. Eftir sjálfstæðið árið [[1953]] hét landið opinberlega á frönsku ''Royaume du Cambodge'' (''Konungsríkið Kambódía'') fram til ársins [[1970]]. Frá árinu 1970 fram til ársins [[1975]] kallaði stjórn [[Lon Nol]] landið ''République khmère'' (''Lýðveldi Khmera'').
Rauðu Khmerarnir kölluðu landið ''Kampuchéa Démocratique'' (''Lýðræðislega Kampútsea'') frá árinu 1975 fram til ársins [[1979]]. Eftir innrás Víetnama árið 1979 og fram til árins [[1989]] kölluðu ráðamenn landið ''République populaire du Cambodge'' (''Alþýðulýðveldið Kambódía''). Frá árinu 1989 til árins [[1993]] hét landið ''Etat du Cambodge'' (''Kambódíska ríkið''). Og frá 1993 heitir það að nýju ''Royaume du Cambodge'' (''Konungsríkið Kambódía'').<ref>Une brève histoire du Cambodge, höfundur François Ponchaud, útgefandi Siloë, ISBN 2-84231-417-4.</ref>
== Söguágrip ==
Í hátt í 2000 ár hefur menningarheimur [[Suðaustur-Asía|suðaustur Asíu]] einkennst af sterkum straumum frá [[Kína]] annars vegar og [[Indland]]i hins vegar. Lengi vel var Kambódía miðstöð í þessum menningarheimi, móttakandi áhrifa og umskapandi og áhrifavaldur. Allt frá hindúískum og búddískum konungsríkjum [[Funan]] og [[Chenla]] á fyrstu frá á áttundu öld eftir Krist og hinu mikla [[Angkor-veldið|Angkor-veldi]] á níundu öld og fram að lokum fimmtándu aldra réðu valdamenn Kambódíu yfir stærsta hluta þess svæðis sem nú er Taíland, Víetnam og Laos. Khmer-veldið stóð sem hæst á 12. öld á stjórnartíma [[Jayavaram VII]] og má enn sjá merki þess í musterisbygginunum miklu í [[Angkor Wat]] og Bayon, hins vegar er ekki mikið eftir af höfuðborg ríkisins Angkor Thom sem á sínum tíma var stærsta borg í heimi.
[[Mynd:Angkor wat.jpg|thumbnail|300 px|Musterið Angkor Wat]]
Frá 16. öld fór veldi Kambódíu hnignandi og lögðu annars vegar konungar Taílands og hins vegar konungar Víetnam undir sig stóran hluta þess sem áður heyrði til landsins og var búið [[Khmer tungumál|khmer]]-talandi íbúum. Seint á nítjándu öld og að hluta til rétt eftir aldamótin 1900 lögðu [[Frakkland|Frakkar]] undir sig landið og gerðu að nýlendu, hluta af svo nefndri [[Franska Indókína|Frönsku Indókína]]. [[Japan]]ir hernámu landið í [[seinni heimstyrjöldin]]ni. Síðan tók við margra áratuga barátta, fyrst fyrir sjálfstæði frá Frakklandi, sem náðist árið 1953. Þá tók fljótlega við borgarastyrjöld og barátta við [[Bandaríkin|bandarískt]] herlið í því sem nefnt hefur verið Seinna Indókínastríðið en þekktara er meðal almennings sem [[Víetnamstríðið]]. Helsti ráðamaður í Kambódíu á árunum frá árinu 1954 fram til árins 1970 var [[Sihanouk prins]]. Árin 1975 til 1979 réðu [[Rauðu khmerarnir]] (Khmer Rouge) yfir öllu landinu. Þetta var harðsnúin [[Kommúnismi|kommúnistahreyfing]] undir forystu [[Pol Pot]]s sem ætlaði að hreinsa landið frá erlendum áhrifum og skapa jafnréttisríki sveitamanna. Sú umbyltingartilraun endaði með blóðbaði, áætlað er að minnsta kosti 1,5 milljónir kambódíumanna hafi verið drepnir eða dáið úr hungri og illri meðferð á valdatíma rauðu khmeranna <ref>Engar ábyggilegar heimildir um fjölda eru til um þetta og allar tölur eru byggðar á ágiskunum og líkum. Manntal hefur einungis farið fram þrisvar í sögu Kambódíu, 1962 og töldust íbúar þá vera 5,7 milljónir, 1998 og voru þeir þá 11,4 milljónir og síðast árið 2008 og voru íbúar þá orðnir 14,2 milljónir. Sjá [http://statsnis.org/] National Institute of Statistics</ref> og býr landið enn að afleiðingum þessara hörmunga. Her Víetnama réðist inn í Kambódíu árið 1979 og tókst að hrekja Rauðu khmerana frá völdum en settu fylgismenn sína á valdastól. Skæruliðabardagar héldu þó áfram í stórum hluta landsins þar til Rauðu khmerarnir endanlega gáfust upp árið 1999. Í landinu ríkir nú formlega lýðræðislegt stjórnskipulag en þrátt fyrir miklar framfarir á mörgum sviðum er spilling af öllu tagi mikið vandmál á öllum sviðum þjóðfélagins.<ref>[http://www.globalwitness.org/media_library_get.php/774/1234634013/country_for _sale_low_res_english.pdf Cambodia Country for Sale, skýrsla frá Global Witness]</ref> [[Hun Sen]], núverandi forsætisráðherra, hefur verið helsti ráðmaður Kambódíu allt frá innrás Víetnama 1979. Frá 1979 til 1990 var hann utanríkisráðherra en tók einnig við embætti sem forsætisráðherra árið 1985 og hefur verið það síðan.
== Landlýsing ==
[[Mynd:Cambodia Topography.png|thumbnail|vinstri|300 px|Kort af Kambódíu]]
Kambódía er heldur stærra en [[Ísland]] að flatarmáli eða um 180.000 km², um 450 km frá norðri til suðurs og um 580 km frá austri til vesturs. Miðhluti landsins einkennist af mikilli setlagasléttu í kring um [[Tonle Sap]] vatnið og samnefnt fljót og efri hluta [[Mekong]]fljótsins. Í norður hækkar landið í um 500 m hæð í
Dangrek fjallgarðinum þar sem landamærin við Taíland liggja. Austan við Mekong í norðri hækkar landið upp í skógi þakið fjallasvæði sem halda áfram inn í Laos og Víetnam. Í suðvesturhluta landsins eru tvö hálendissvæði, Krâvanh (Kardimommu) fjöllin og Dâmrei (Fíla) fjöllin. Fyrir norðaustan Fílafjöllin er hæsta fjall í Kambódíu, Phnom Aôral, sem rís í 1813 metra hæð. Mjótt láglendissvæði er meðfram Taílandsflóa.
[[Mynd:Old man on tonle sap.jpg|thumbnail|300 px|Þorp við Tonle Sap á rigningartímanum]]
Vatnakerfi Mekong-fljóts og Tonle Sap-fljóts eru mjög afgerandi fyrir landslag og náttúru. Mekong-fljótið á upptök á hásléttu Tíbets og rennur út í Suður-Kínahaf, Khone fossarnir eru á landmærum Laos og Kambódíu og loka fyrir skipaferðir fyrir ofan og neðan fossana. Mekong-fljótið rennur í 510 km suður og síðan suðaustur í gengum Kambódíu. Mekong-fljótið og Tonle Sap-fljótið mætast við Phnom Penh. Á regntímanum, sem oftast stendur yfir frá miðjum maí fram í byrjun október eykst vatnsmagnið í Mekong svo gífurlega að straumur Tonle Sap-fljóts snýst við og vatnið rennur upp í vatnið Tonle Sap. Við það stækkar vatnið frá 3100 km², sem það er á þurrkatímum, upp í 7800 km². Þegar hættir að rigna snýst straumurinn við á nýtt. Þetta árlega fyrirbæri gerir vatnasvæði Tonle Sap að afar merkilegu og sérstöku lífríki. bæði er þar mikill fjöldi fiskitegunda og mikið magn af fiski.
== Veðurfar ==
[[Monsúnvindar]] stjórna veðurfari í Kambódíu og eru þar tvær megin árstíðir. Frá miðjum [[maí]] fram í [[október]]byrjun er ráðandi suðvestan vindar sem bera með sér mikla úrkomu. Frá miðjum [[nóvember]] fram að miðjum [[mars]] er vindáttin einkum úr norðaustri og og er þá oftast frekar léttskýjað og lítil úrkoma. Það er frekar heitt allt árið um kring, í kaldast mánuðinum, [[janúar]], er meðalhiti um 28 °C og um 35 °C í [[apríl]]. Mikill munur er á úrkomu í landinu, um 5000 mm á fjallasvæðum suðvestanlands en einungis 1270–1400 mm á láglendissvæðinu í miðju landinu. Þrír fjórðu hlutar árlegar úrkomu fellur á rigningartímanum.
== Lífríki ==
[[Mynd:Indischer Elefant.jpg|thumbnail|300 px|Fíll og tígrisdýr, teikning frá 1911]]
Láglendissvæðið sem nær yfir stóran hluta Kambódíu er að miklu leiti þakið hrísgrjónaökrum og annarri akuryrkju. Þar eru þó einnig skógarsvæði og graslendur. Eftir því sem hærra dregur taka við skógarsvæði og [[Gresja|gresjur]] þar sem [[Grasaætt|grastegundir]] vaxa sem ná allt að 1,5 m hæð. Hálendissvæðin í norðri og suðri eru þakin miklum skógum þar sem trén verða allt að 45 m á hæð.
Í skógarsvæðunum í norðaustur lifði til skamms tíma mikill fjöldi villtra dýra eins og á nálægum svæðum í Laos og Víetnam. Styrjaldir og óheft veiði hefur gengið hart á flest stofna dýra á þessu svæði. Þar má þó enn finna [[Asíu-fílar|Asíu fíla]] (''Elephas maximus''), [[Indókínverska tígrisdýrið]] (''Panthera tigris corbetti''), [[Hlébarði|hlébarðar]] (''Panthera pardus''), [[Svartbjörn|svartbirni]] (''Ursus thibetanus''), [[Sólbjörn|sólbirni]] (''Helarctos malayanus''), hinn risavaxna [[Gáruxi|gáruxa]] (''Bos gaurus'') og fjöldi hjartardýrategunda. [[Nashyrningur|Nashyrningum]], bæði af tegundunni Rhinoceros sondaicus og Dicerorhinus sumatrensis, er hins vegar búið að útrýma.
í skógunum er að finna fjölda fuglategunda, meðal annars hinir villtu forfeður taminna [[Nytjahænsni|hænsna]], [[bankívahænsni]]n (Gallus gallus).
== Lýðfræði ==
Andstætt öðrum löndum í Suðaustur-Asíu hefur yfirgnæfandi meirihluti íbúa Kambódíu (um 90 %)<ref>[https://www.cia.gov/ CIA - The World Factbook]</ref> sama móðurmál og telja sig til sömu menningar og eru þeir nefndir Khmer. Aðrir þjóðflokkar eru Víetnamar, Kínverjar, Cham (múslimar) og þar að auki allmargir hópar frumbyggja.
Tungumálið khmer sem er móðurmál flestra íbúa Kambódíu er eitt helsta mál í [[mon-khmer mál|mon-khmer tungumálfjölskyldunni]] sem er undirætt af [[Ástrónesísk mál|ástóasísku]] tungumálaættinni. Af frumbyggjamálunum eru katu, mnong og stieng mon-khmer mál en jarai og rhade eru [[ástrónesísk mál|ástrónesísk]].
== Trúarbrögð ==
[[Mynd:Buddhist monk in Buddhist church.jpg|thumbnail|hægri|300 px|Búddha-munkar á bæn]]
Flestir af þjóð Khmera eru [[theravada búddismi|Theravada búddistar]] eða um 95 % íbúa. Fram að árinu 1975 var búddismi opinber ríkistrú í Kambódíu. Rauðu khmerarnir bönnuðu með öllu öll trúarbrögð og helgiathafnir og myrtu fjölda [[Munkur|munka]] og eyðilögðu að mestu skipulag búddismans í landinu. Sú stjórn sem Víetnamar komu að völdum studdi búddisma þó svo að það væri mjög takmarkaður stuðningur en theravada búddismi var endurreist sem opinber ríkistrú árið 1993. En 20 ára lægð hefur verið erfið að yfirvinna, trúin er langt því frá jafn áhrifarík og hún var fyrir árið 1975 hvorki í heimssýn almennings né í menningar og menntamálum.
Frumbyggjaþjóðflokkarnir fylgja forfeðradýrkun og andatrú en Víetnamarnir og Kínverjarnir eru flestir fylgjandi [[mahayana|mahayana-búddisma]] og [[Daóismi|dóisma]]. Einnig eru sumir Víetnamarnir [[Kaþólska kirkjan|kaþólskir]] eða fylgja [[Cao Dai]]. Minnihlutahópurinn Cham eru múslimar af sunní-gerð.<ref>[http://www.countryreports.org/ Country Reports]</ref>
== Menntun ==
Sögulega séð hefur formleg menntun í Kambódíu einungis farið fram í búddamusterunum og þar með einungis ætluð karlmönnum. Samkvæmt hefð theravada búddista eiga allir karlmenn að helga sig trúnni um tíma og gerðu það allflestir drengir í nokkra mánuði þó svo að einungis fáeinir gerðust munkar ævilangt. Margir drengir fara enn í trúarnám í musteri þó það sé ekki nema nokkrar vikur eða mánuði.
Á tíma frönsku nýlendustjórnarinnar voru einungis fáeinir skólar í landinu og einungis miðaðir að börnum aðalsmanna og kennsla öll á frönsku. Það var hins vegar ekki fyrr en eftir að landið fékk sjálfstæði 1953 sem tekið var við að byggja upp nútíma skólakerfi þó svo að einungis lítill hluti barna færu í skóla.
Eftir valdatöku Rauðu khmeranna 1975 var öll formleg menntun lögð af, öllum menntastofnunum lokað og flestir kennarar drepnir og þeir sem undan komust flúðu flestallir land.
Það var því mikið átak að hefja uppbyggingu skólakerfisins að nýju á níunda og tíunda áratug tuttugustu aldar. Nú er svo komið að um 90% allra barna eru innrituð í sex ára skyldugrunnskóla en einungis um 50% þeirra ljúka skólaskyldunni. Enn færri halda áfram upp á mennta- og iðnskólastig.<ref>[http://www.uis.unesco.org/ UNESCO Institute for Statistics]</ref> Það er þó mikil uppbygging á öllum skólastigum. Á síðustu árum hefur sprottið upp fjöldi stofnana sem kalla sig [[háskóli|háskóla]] en gæði kennslu í flestum þeirra er ekki sérlega mikil.
Ólæsi er enn mikið vandamál en samkvæmt könnunum eru nærri 40% allra kvenna eldri en 15 ára ólæsar og um 30% karla.<ref> Literacy for Life, EFA Global Monitoring Report, UNESCO, 2006, ISBN 92-3-104008-1</ref>
== Atvinnulíf ==
[[Mynd:Rice 02.jpg|thumbnail|300 px|lright|Hrísgrjónarækt]]
Kambódía er eitt af fátækustu löndum heims og um 40 % íbúa þéna undir fátækramörkunum 1,35 bandaríkjadollar á dag 2006.<ref>Key Indicators for Asia and the Pacific 2008, ADB, ISBN 0116-3000</ref> Langflestir íbúar landsins lifa af landbúnaði og fiski og stunda um 70 % allra fullorðinna sjálfsþurftarbúskap.<ref>[http://www.caritas.org/worldmap/asia/cambodia.html Caritas]</ref> [[Hrísgrjónarækt]] er þar í sérflokki, aðalfæða og var lengi aðalútflutningsvara. Hrísgrjónaakrar þekja stærstan hluta ræktaðs lands en talið er að einungis 13 % flatarmáli landsin sé ræktanlegt. Enn er að finna víða um land mikið magn af sprengjum frá Víetnamstríðinu svo nefnda og er það stórt vandamál í akuryrkju.
Um 1970 voru um þrír fjórðu hlutar alls lands í Kambódíu þaktir skógi en um árið 2000 hafði skóglendi minnkað í um það bil helming landsins.<ref>[ftp://ftp.fao.org/docrep/fao/008/a0400e/a0400e14.pdf] Skýrsla FAO um skógi og timburframleiðslu</ref> Þrátt fyrir að yfirvöld reyni opinberlega að hindra og stjórna skógarhöggi er enn þá mikið höggvið af skógi á svæðunum nálægt Taílandi annars vegar og Víetnam hins vegar. Þetta er mikið vandamál og hluti af almennri spillingu í landinu.<ref>[http://www.rsf.org/IMG/pdf/cambodias_family_trees_low_res-1-5.pdf Cambodia's Family trees]</ref>
Kambódía hefur haft mikinn efnahagsvöxt síðasta áratuginn eða um 5 % á ári. Það er einkum textíliðnaður og ferðamannaþjónusta sem hefur vaxið. Textíliðnaðurinn er nánast eingöngu fatasaumur og var fataútflutningur 2008 94 % af heildarútflutningi landsins.<ref>[http://www.cdc-crdb.gov.kh Council for the Development of Cambodia]</ref> Stærsti hluti textíliðnaðar í Kambódíu er í eign kínverskra fyrirtækja en um tveir þriðjuhlutar framleiðslunnar er flutt út til Bandaríkjanna.
[[Ferðamannaþjónusta]] er í hröðum vexti og eru það einkum ferðamenn frá [[Suður-Kórea|Suður-Kóreu]] og Víetnam á ferð en auk þess vaxandi fjöldi vesturlandabúa. Árið 2005 komu um 1,4 milljónir ferðamanna til landsins en árið 2008 komu 2,1 milljón. Langflestir þessara ferðamanna fara til Siem Reap til að skoða Angkor Wat en einnig margir á sólarstrendur í [[Sihanoukville]].<ref>[http://www.mot.gov.kh/ Statistics & Tourism Information Department, Ministry of Tourism]</ref>
== Samgöngur ==
[[Mynd:National highway number 1.jpg|thumbnail|300 px|Umferð á Þjóðvegi númer 1]]
Vegir í Kambódíu voru afar illa farnir eftir sprengjuárásir bandaríkjahers á sjötta og sjöunda ártug 20. aldar og ekki bætti skæruhernaður og borgarstyrjöld sem stóð allt fram á tíunda áratuginn. Aðalumferðaræðar hafa tekið miklum framförum síðustu tíu árin og eru nú helstu vegir [[malbik]]aðir og geta borið mikla umferð. Bílaeign vex ört þó svo að [[mótorhjól]] séu mun algengari, bæði til fólks og vöruflutninga. Meirihluti íbúa hafa þó engin vélknúin faratæki heldur fara fótgangandi eða nota [[reiðhjól]].
Einungis tvær [[járnbraut]]ir eru í landinu, hefjast þær báðar í Phnom Penh og gengur önnur til Sihanoukville en hin til [[Sisophon]] skammt frá landamærunum að Taílandi. Lestarnar fara stopult og eru á allan hátt óáreiðanlegar.
Vatnakerfi [[Mekong]] og [[Tonle Sap]] fljótanna hafa verið helstu flutningaleiðir landsins og gegna enn mikilvægu hlutverki. Mekong-fljótið er skipafært allt frá árósum í [[Suður-Kínahaf]]i og upp að Khone Pha Pheng fossunum á landamærunum við Laos. Það fer þó allt eftir árstíma hversu stórum skipum er fært upp fljótin. Í Kambódíu eru tvær meginhafnir, Phnom Penh og Sihanoukville. Phnom Penh er þar sem fljótin [[Bassac]], Mekong og Tonle Sap mætast. Höfnin þar getur tekið 8000 tonna skipum á rigningartímanum og allt að 5000 tonna skipum á þurrkatímanum.<ref>Evelyn Goh, ''Developing the Mekong: Regionalism and Regional Security in China – Southeast Asian Relations'' (Routledge, 2007). ISBN 978-0-415-43873-5</ref>
Í landinu eru fjórir stærri flugvellir. Sá stærsti er í Siem Reap í næsta nágrenni við Angkor Wat og þjónar hann yfirgnæfandi meirihluta ferðamanna til landsins. Pochentong flugvöllurinn í Phnom Penh er næst stærstur en flugvellirnir í Sihanoukville og Battambang eru mun minni.
== Neðanmálsgreinar ==
<div class="references-small"><references/></div>
== Tenglar ==
{{commonscat|Cambodia|Kambódíu}}
* [http://www.cambodia.gov.kh/unisql1/egov/english/home.frame.html Cambodia.gov.kh] Opinber vefur ríkisstjórnar Kambódíu á ensku]
* [https://www.cia.gov/library/publications/the-world-factbook/geos/cb.html CIA Fact Book Cambodia]
* [http://www.commonlanguageproject.net/?page_id=41#Cambodia Cambodia Country Factsheet] from The Common Language Project
* [http://www.tsbr-ed.org The largest environmental website relating to the Tonle Sap Biosphere and Cambodia]
* [http://www.cambodiatribunal.org/ Cambodia Tribunal Monitor]
* [http://www.un.org.kh/undp/?url=/undp/cmdgs/cmdgs Kambódíu verkefni] UNDP
{{ASEAN}}
{{Asía}}
{{Tengill ÚG|en}}
{{Tengill ÚG|af}}
{{Tengill ÚG|km}}
[[Flokkur:Kambódía]]
[[Flokkur:Asía]]
[[ace:Kamboja]]
[[af:Kambodja]]
[[als:Kambodscha]]
[[am:ካምቦዲያ]]
[[an:Cambocha]]
[[ang:Cambodia]]
[[ar:كمبوديا]]
[[arz:كامبوديا]]
[[ast:Camboya]]
[[az:Kamboca]]
[[bar:Kambodscha]]
[[bat-smg:Kambuodža]]
[[bcl:Kambodya]]
[[be:Камбоджа]]
[[be-x-old:Камбоджа]]
[[bg:Камбоджа]]
[[bn:কম্বোডিয়া]]
[[bo:ཁམ་པོ་ཛ།]]
[[bpy:কম্বোডিয়া]]
[[br:Kambodja]]
[[bs:Kambodža]]
[[bug:Kamboja]]
[[bxr:Камбож]]
[[ca:Cambodja]]
[[ce:Камбоджа]]
[[ceb:Cambodia]]
[[ckb:کەمبۆدیا]]
[[crh:Kamboçiya]]
[[cs:Kambodža]]
[[csb:Kambòdżô]]
[[cv:Камбоджа]]
[[cy:Cambodia]]
[[da:Cambodja]]
[[de:Kambodscha]]
[[diq:Kamboçya]]
[[dsb:Kambodža]]
[[dv:ކެންބޯޑިއާ]]
[[dz:ཀམ་བོ་ཌི་ཡ་]]
[[el:Καμπότζη]]
[[en:Cambodia]]
[[eo:Kamboĝo]]
[[es:Camboya]]
[[et:Kambodža]]
[[eu:Kanbodia]]
[[ext:Camboya]]
[[fa:کامبوج]]
[[fi:Kambodža]]
[[fiu-vro:Kambodža]]
[[fr:Cambodge]]
[[frp:Cambodg·e]]
[[fy:Kambodja]]
[[ga:An Chambóid]]
[[gag:Kamboca]]
[[gan:柬埔寨]]
[[gd:Cambuidea]]
[[gl:Camboxa - កម្ពុជា]]
[[gn:Kamboja]]
[[gu:કમ્બોડીયા]]
[[gv:Yn Chamboyd]]
[[ha:Kambodiya]]
[[hak:Kán-pu-chhài]]
[[haw:Kamabodia]]
[[he:קמבודיה]]
[[hi:कम्बोडिया]]
[[hif:Cambodia]]
[[hr:Kambodža]]
[[hsb:Kambodźa]]
[[ht:Kanbòdj]]
[[hu:Kambodzsa]]
[[hy:Կամբոջա]]
[[ia:Cambodgia]]
[[id:Kamboja]]
[[ie:Cambodja]]
[[ilo:Cambodia]]
[[io:Kambodja]]
[[it:Cambogia]]
[[ja:カンボジア]]
[[jv:Kamboja]]
[[ka:კამბოჯა]]
[[kk:Камбоджа]]
[[km:ព្រះរាជាណាចក្រកម្ពុជា]]
[[kn:ಕಾಂಬೋಡಿಯ]]
[[ko:캄보디아]]
[[ku:Kamboca]]
[[kv:Камбоджа]]
[[kw:Kamboji]]
[[la:Cambosia]]
[[lb:Kambodscha]]
[[li:Cambodja]]
[[lij:Cambògg-ia]]
[[lmo:Cambogia]]
[[ln:Kamboji]]
[[lo:ປະເທດກຳປູເຈຍ]]
[[lt:Kambodža]]
[[lv:Kambodža]]
[[map-bms:Kamboja]]
[[mdf:Камбоджа]]
[[mg:Kambodia]]
[[mi:Kamapōtia]]
[[mk:Камбоџа]]
[[ml:കംബോഡിയ]]
[[mn:Камбож]]
[[mr:कंबोडिया]]
[[ms:Kemboja]]
[[my:ကမ္ဘောဒီးယားနိုင်ငံ]]
[[na:Kambodja]]
[[nah:Camboya]]
[[nap:Cambogia]]
[[nds:Kambodscha]]
[[nl:Cambodja]]
[[nn:Kambodsja]]
[[no:Kambodsja]]
[[nov:Kambodia]]
[[oc:Cambòtja]]
[[or:କମ୍ବୋଡ଼ିଆ]]
[[os:Камбоджæ]]
[[pa:ਕੰਬੋਡੀਆ]]
[[pam:Kambodya]]
[[pih:Kamboedya]]
[[pl:Kambodża]]
[[pms:Cambògia]]
[[pnb:کمپوچیا]]
[[ps:کمبودیا]]
[[pt:Camboja]]
[[qu:Kambuya]]
[[rm:Cambodscha]]
[[ro:Cambodgia]]
[[roa-rup:Cambogia]]
[[ru:Камбоджа]]
[[rw:Kambodiya]]
[[sah:Камбодьа]]
[[scn:Camboggia]]
[[sco:Cambodie]]
[[se:Kampučea]]
[[sh:Kambodža]]
[[si:කාම්බෝජය]]
[[simple:Cambodia]]
[[sk:Kambodža]]
[[sl:Kambodža]]
[[so:Kambodiya]]
[[sq:Kamboxhia]]
[[sr:Камбоџа]]
[[ss:IKhambodiya]]
[[su:Kamboja]]
[[sv:Kambodja]]
[[sw:Kamboja]]
[[szl:Kambodża]]
[[ta:கம்போடியா]]
[[te:కంబోడియా]]
[[tg:Камбоҷа]]
[[th:ประเทศกัมพูชา]]
[[tk:Kamboçiýa]]
[[tl:Kamboya]]
[[tr:Kamboçya]]
[[tt:Камбоҗа]]
[[udm:Камбоджа]]
[[ug:كامبوجا]]
[[uk:Камбоджа]]
[[ur:کمبوڈیا]]
[[uz:Kambodja]]
[[vi:Campuchia]]
[[vo:Kambocän]]
[[war:Cambodia]]
[[wo:Kamboodi]]
[[wuu:柬埔寨]]
[[xal:Камбудин Нутг]]
[[yi:קאמבאדיע]]
[[yo:Kàmbódíà]]
[[zh:柬埔寨]]
[[zh-classical:柬埔寨]]
[[zh-min-nan:Kampuchea]]
[[zh-yue:柬埔寨]]All content in the above text box is licensed under the Creative Commons Attribution-ShareAlike license Version 4 and was originally sourced from https://is.wikipedia.org/w/index.php?oldid=1344321.
![]() ![]() This site is not affiliated with or endorsed in any way by the Wikimedia Foundation or any of its affiliates. In fact, we fucking despise them.
|