Revision 1482072 of "Tsjad" on iswiki

{{land
| nafn_á_frummáli = Jumhuriyat Tashad
République du Tchad
| nafn_í_eignarfalli = Tsjad
| fáni = Flag of Chad.svg
| skjaldarmerki = Coat of arms of Chad.svg
| kjörorð = Unité - Travail - Progrès
([[franska]]: Eining - vinna - framfarir)
| staðsetningarkort = Location_Chad_AU_Africa.svg
| tungumál = [[franska]], [[arabíska]]
| höfuðborg = [[N'Djamena]]
| stjórnarfar = [[Lýðveldi]]
| titill_leiðtoga = [[Forseti Tsjad|Forseti]]
[[Forsætisráðherra Tsjad|Forsætisráðherra]]
| nöfn_leiðtoga = [[Idriss Déby]]
[[Kalzeubet Pahimi Deubet]]
| stærðarsæti = 21
| flatarmál = 1.284.000
| hlutfall_vatns = 1,9
| mannfjöldaár = 2009
| mannfjöldasæti = 73
| fólksfjöldi = 10.329.208
| íbúar_á_ferkílómetra = 8
| VLF_ár = 2011
| VLF_sæti = 122
| VLF = 19,543
| VLF_á_mann = 1.865
| VLF_á_mann_sæti = 146
| staða = [[Sjálfstæði]]
| atburður1 = frá [[Frakkland]]i
| dagsetning1 = [[11. ágúst]] [[1960]]
| gjaldmiðill = [[CFA-franki]] (XAF)
| tímabelti = [[UTC]] +1
| þjóðsöngur = [[La Tchadienne]]
| tld = td
| símakóði = 235

'''Tsjad''' ([[arabíska]]: تشاد , ''Tašād''; [[franska]]: ''Tchad'') er [[landlukt]] land í [[Mið-Afríka|Mið-Afríku]]. Það á landamæri að [[Líbýa|Líbýu]] í norðri, [[Súdan]] í austri, [[Mið-Afríkulýðveldið|Mið-Afríkulýðveldinu]] í suðri, [[Kamerún]] og [[Nígería|Nígeríu]] í suðvestri og [[Níger]] í vestri. Landið er að stærstum hluta í [[Sahara]]eyðimörkinni. Í norðurhluta þess er [[Tíbestífjallgarðurinn]], stærsti fjallgarður Sahara. Hæsti fjallstindur Tsjad er eldfjallið [[Emi Koussi]] í Tíbetsífjallgarðinum sem stendur í 3.445 metra hæð yfir sjávarmáli. Nafn landsins er dregið af nafni [[Tsjadvatn]]s sem er stærsta votlendissvæðið í Tsjad og það annað stærsta í Afríku. Landið skiptist í þrjú belti: Nyrst er [[eyðimörk]] og syðst [[Súdan (heimshluti)|súdönsk]] [[grasslétta]] en milli þeirra er [[sahel]] eða eyðimerkurjaðar.

Íbúar Tsjad eru rúmlega tíu milljónir og tilheyra yfir 200 ólíkum þjóðarbrotum. Tæplega milljón býr í höfuðborginni, [[N'Djamena]], sunnan við Tsjadvatn við vesturlandamæri landsins. Um 120 tungumál af þremur málaættum eru töluð í Tsjad en opinber tungumál landsins eru [[franska]] og [[arabíska]]. [[Tsjadísk arabíska]] er almennt samskiptamál. Rétt rúmur helmingur íbúa aðhyllist [[íslam]] og um 40% eru [[Kristni|kristnir]].

== Saga ==
{{commonscat|Chad|Tsjad}}
Menn tóku að setjast að í dældinni við Tsjadvatn á sjöunda árþúsundinu fyrir okkar tímatal. Nokkur ríki komu þar upp í tengslum við [[Saharaverslunin]]a. Á miðöldum varð hluti landsins hluti af [[Kanem-Bornúveldið|Kanem-Bornúveldinu]] en á nýöld náðu ríkin [[Ouaddai]] og [[Banguirmi]] hlutum landsins undir sig. Frakkar hófu herferðir gegn múslimskum soldánsdæmum í Tsjad undir lok 19. aldar og lögðu það undir sig eftir sigur á súdanska stríðsherranum [[Rabih az-Zubayr]] í [[orrustan við Kousséri|orrustunni við Kousséri]] árið 1900. Árið 1905 varð Tsjad hluti af [[Franska Miðbaugs-Afríka|Frönsku Miðbaugs-Afríku]]. Eftir ósigur Frakka gegn Þjóðverjum í [[Síðari heimsstyrjöld]] gekk Tsjad til liðs við [[Bandamenn (seinni heimsstyrjöldin)|Bandamenn]], fyrst franskra nýlendna. Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1958 var Franska Miðbaugs-Afríka leyst upp og ríkin [[Gabon]], [[Vestur-Kongó]], Mið-Afríkulýðveldið og Tsjad urðu sjálfstæðar nýlendur. Tveimur árum síðar varð Tsjad sjálfstætt og [[François Tombalbaye]] varð fyrsti forseti landsins.

Tombalbaye kom á flokksræði og fljótlega hófst uppreisn gegn stjórn hans í norðurhluta landsins. Eftir langvinna borgarastyrjöld var Tombalbaye drepinn í herforingjauppreisn árið 1975 og við tók herforingjastjórn. Aftur braust út borgarastyrjöld árið 1979 sem stóð til 1982. Einn af leiðtogum herforingjastjórnarinnar, [[Hissène Habré]], náði þá völdum. Hann barðist gegn uppreisnarflokkum í norðri sem höfðu stuðning [[Líbýa|Líbýustjórnar]] [[Muammar Gaddafi|Muammars Gaddafi]] og barði niður alla mótspyrnu innanlands af mikilli hörku. Árið 1987 sömdu Tsjad og Líbýa um vopnahlé og í kjölfar alþjóðlegrar ráðstefnu 1994 fékk Tsjad aftur yfirráð yfir löndum í norðurhlutanum sem Líbýumenn höfðu hernumið. Einn af herforingjum Habrés, [[Idriss Déby]], hóf uppreisn gegn honum 1989 og náði völdum 1991. Hann sigraði í fyrstu fjölflokkakosningunum sem haldnar voru 1997. Déby náði að kveða niður óróann í landinu að mestu en eftir sigur hans í forsetakosningum 2001 var hann sakaður um kosningasvindl og spillingu. Þegar átökin hófust í [[Darfúr]] í Súdan komu þúsundir flóttamanna þaðan til Tsjad sem lýsti Súdan stríði á hendur árið 2005. Í kjölfarið hófst aftur [[borgarastyrjöldin í Tsjad (2005-2010)|borgarastyrjöld í Tsjad]] sem stóð til 2010 og náði hápunkti með árás andstæðinga Débys á höfuðborgina N'Djamena í apríl 2006 og aftur í febrúar 2008. Stjórn Débys náði að verjast og hélt völdum. Árið 2010 var undirritað friðarsamkomulag við Súdan sem fól í sér að flóttamenn frá Darfúr fengu að snúa aftur heim.

== Stjórnsýsluskipting ==
Frá febrúar 2008 hefur Tsjad skipst í 22 héruð sem tóku við af 14 umdæmum. Innan héraðanna eru 61 lögsagnarumdæmi sem skiptast í 200 undirumdæmi sem aftur ná yfir 446 sveitarfélög. Hver stjórnsýslueining á að hafa eigin þing en kosningar til sveitarstjórna hafa ekki verið haldnar.

|- valign="top" |

[[Mynd:Chad regions map-numbered 2008-02.svg|250px|left|Héruð Tsjad]]

# [[Batha-hérað|Batha]]
# [[Chari-Baguirmi-hérað|Chari-Baguirmi]]
# [[Hadjer-Lamis-hérað|Hadjer-Lamis]]
# [[Wadi Fira-hérað|Wadi Fira]]
# [[Bahr el Gazel-hérað|Bahr el Gazel]]
# [[Borkou-hérað|Borkou]]
# [[Ennedi-hérað|Ennedi]]
# [[Guéra-hérað|Guéra]]
# [[Kanem-hérað|Kanem]]
# [[Lac-hérað|Lac]]
# [[Logone Occidental Region|Logone Occidental]]

[[Logone Oriental-hérað|Logone Oriental]]

# [[Mandoul-hérað|Mandoul]]
# [[Mayo-Kebbi Est-hérað|Mayo-Kebbi Est]]
# [[Mayo-Kebbi Ouest-hérað|Mayo-Kebbi Ouest]]
# [[Moyen-Chari-hérað|Moyen-Chari]]
# [[Ouaddaï-hérað|Ouaddaï]]
# [[Salamat-hérað|Salamat]]
# [[Sila-hérað|Sila]]
# [[Tandjilé-hérað|Tandjilé]]
# [[Tibesti-hérað|Tibesti]]
# [[N'Djamena]]

{{Stubbur|afríka}}
{{Afríka}}

{{Tengill ÚG|en}}
{{Tengill ÚG|bg}}
{{Tengill ÚG|no}}
{{Tengill ÚG|sv}}
{{Tengill ÚG|zh}}

[[Flokkur:Tsjad| ]]
[[Flokkur:Landlukt lönd]]

{{Tengill GG|da}}
{{Tengill GG|es}}
{{Tengill GG|pt}}