Difference between revisions 7563 and 7570 on iswikisource

<noinclude><pagequality level="1" user="" /><div class="pagetext"><div align="center">IV</div>


</noinclude>IV 
og varð svo ekki meira úr því. — Merkilegt er það aö 
Bspólin ekki virðist hafa þekkt söguna, aö minnsta kosti 
hefur hann ekki i árbókum sínum tilfært neitt um víg Pjeturs 
hirðstjóra, og eru þó ekki mörg hirðstjóravígin á Islandi, 
ekki heldur um bardagann milli Englendinga og Frakka 
fyrir Látrabjargi, nje sendiförina til Bessastaða og það sem 
í 3. parti sögunnar er sagt um Tyrki þar, en alt þetta hefði 
hann líklega notað ef hann hefði þekkt bókina. 
A 19. öldinni fengust nokkrir við ritið. í Konunglega 
bókasafninu í Khöfn er til dönsk þýðing (hdr. Nj T kgl. 
Saml. 2077 a, sjá skrá Dr. Kálunds, bls. 289—90), en hún 
endur í 16. kap. fyrsta partsins, og er full af misskilningi 
og vitleysum; hún hefur því aldrei verið gefin út. Heyrt 
hef jeg sagt að Páll heitinn Briem amtmaður hafi haft í 
hyggju að gefa söguna út, en orðið að hætta við það. Pá 
gerði Valdimar Ásmundsson ritstjóri útdrátt úr sögunni, og 
birti í blaði sínu Fjallkonunni 4. árg. 1887. Ólafur Davíðs- 
son birti í Sunnanfara V, 37 — 38 frásögn Jóns um viðræðu 
sína og Jóns Halldórssonar við Kristján 4. (hjer bls. 49—50) 
og um íslendinga í Höfn (hjer bls. 33—34). Dr. Jón Por- 
kelsson landsskjalavörður gaf út kaflana um Tyrkjaránið 
(III. partur, k. 2—6) í »Tyrkjaránið á íslandi 1627. Sögu- 
félag gaf út. Kvik 1906-09«, bls. 200—316. Árið 1905 
kom út fj'rsti partur bókarinnar í danskri þýðingu eftir 
mig: Jon Olafssons Oplevelser som Bosseskytte under Chri- 
stian IV. Nedskrevne af ham selv. I Oversættelse ved S. 
Blöndal. Udgivne af Julius Clausen og P. Fr. Kist. G-yl- 
dendalske Boghandel, Nordisk Forlag (Kobenhavn 1905), 
V + 244 bls. 8°, og er sú þýðing 1. bindi í ritsafninu 
»Memoirer og Breve« sem þeir Julius Clausen bókavörður 
og P. Fr. Fiist ofursti gefa út. Athugasemdirnar voru lang- 
nestar eftir þá útgefendurna, jeg ritaði líka stuttan for- 
mála og ýmsar athugasemdir um það er Island snerti. 
Arið 1 907 kom svo siðari hlutinn : Jon Olaf ssons Oplevelser 
som Ostindiefarer under Christian IV. Nedskrevne af ham 
selv. I Oversættelse ved S. Blöndal. Udgivne af Julius 
Clausen og P. Fr. Rist. Gyldendalske Boghandel, Nordisk <noinclude><references/></div></noinclude>